Shiba Inu (SHIB) er tókiTókiStafræn eign sem er búin til með snjallsamningi á bálkakeðju annarrar rafmyntar, í stað þess að hafa eigin bálkakeðju. á Ethereum-netinu sem nafnlaus höfundur, sem kallaði sig Ryoshi, setti á markað í ágúst 2020. Tókinn er nefndur eftir japönsku hundategundinni sem prýðir líka merki Dogecoin og telst til svokallaðra memecoinsMemecoinRafmynt sem er sprottin af netgríni eða jarmi, hefur yfirleitt lítið sem ekkert notagildi og byggir verð sitt nær eingöngu á umtali..
Hvernig virkar SHIB?
SHIB hefur enga eigin bálkakeðju heldur fylgir staðlinum ERC-20ERC-20Staðall fyrir tóka á Ethereum-netinu sem gerir öllum veskjum og þjónustum kleift að taka við þeim og senda þá á sama hátt. á Ethereum. Í upphafi voru til 1.000 billjónir SHIB (ein billjón er milljón milljónir). Helmingurinn fór til Vitaliks Buterin, eins stofnenda Ethereum. Í maí 2021 gaf hann hluta til hjálparstarfs á Indlandi og brenndi svo rúmar 410 billjónir. Að brenna tóka þýðir að senda þá á veskisfang sem enginn getur nokkurn tíma hreyft.
Engir nýir SHIB geta orðið til, svo heildarframboðiðHeildarframboðFjöldi eininga rafmyntar sem eru þegar til, hvort sem þær eru komnar í umferð eða eru enn læstar, að frádregnum þeim sem hefur verið eytt. getur aðeins minnkað. Í október 2026 voru um 590 billjónir eftir.
Vistkerfið
Í kringum SHIB hefur vaxið vistkerfi með dreifstýrðu kauphöllinni ShibaSwap, lag 2-netinuLag 2 (layer 2)Kerfi sem byggt er ofan á bálkakeðju eins og Ethereum eða Bitcoin til að gera færslur hraðari og ódýrari en á grunnlaginu sjálfu. Shibarium og tókunum BONE, LEASH og TREAT. BONE er stjórnunartóki sem einnig er notaður til að greiða færslugjöld á Shibarium.
Hvað er gott að vita?
Verð SHIB ræðst að miklu leyti af umtali og hefur sveiflastSveiflurMælikvarði á hve mikið og hve hratt verð eignar hækkar og lækkar. gríðarlega. Það náði hámarki í október 2021 og var sumarið 2023 komið rúm 90% neðar. Hver sem er getur líka búið til falsaðan tóka með sama nafni, svo það er samningsfang tókans sem skiptir máli, ekki nafnið.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.