„Not your keys, not your coins“ er enskt orðtak sem þýðir: ef þú hefur ekki lyklana, áttu ekki myntirnar. Hugmyndin er sú að sá sem hefur einkalyklanaEinkalykillLeynileg tala sem sannar að þú eigir rafmyntina í veskinu þínu. Sá sem hefur einkalykilinn ræður yfir rafmyntinni. ræður yfir rafmyntinni. Ef fyrirtæki geymir lyklana fyrir þig ertu að treysta því fyrir eignunum.
Hvaðan kemur orðtakið?
Orðtakið festist í sessi eftir að nokkrar rafmyntamiðlanir hrundu og viðskiptavinir misstu aðgang að eignum sínum. Þekktasta dæmið er FTX, ein stærsta rafmyntamiðlun heims, sem hrundi í nóvember 2022. Bandaríska verðbréfaeftirlitið (SEC) sakaði stofnandann um að hafa fært fé viðskiptavina yfir í eigin vogunarsjóð. Viðskiptavinir gátu ekki tekið eignir sínar út og stofnandinn var síðar sakfelldur fyrir fjársvik.
Hvað þýðir það í raun?
Orðtakið er áminning, ekki regla sem hentar öllum. Í eigin vörsluEigin varslaÞegar þú geymir einkalyklana að rafmyntinni þinni í eigin veski, svo enginn annar ræður yfir henni en ábyrgðin á lyklunum er öll þín. ræður þú alveg yfir rafmyntinni, en berð líka alla ábyrgð. Ef þú týnir endurheimtarorðunumEndurheimtarorðRöð 12 eða 24 orða sem allir lyklar veskisins eru reiknaðir út frá, svo hver sem hefur orðin getur endurheimt veskið og tekið rafmyntina. er rafmyntin glötuð.
Hjá vörsluaðilaVörsluaðiliFyrirtæki sem geymir rafmynt og lyklana að henni fyrir hönd viðskiptavina, til dæmis rafmyntamiðlun með starfsleyfi. treystir þú fyrirtæki. Síðan MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES. tók gildi þurfa vörsluaðilar með starfsleyfi að halda eignum viðskiptavina aðskildum frá eigin eignum, svo lánardrottnar geti ekki gengið að þeim við gjaldþrot. Það dregur úr áhættunni, en eyðir henni ekki.
Spurningarnar sem skipta máli eru þessar: Hver geymir lyklana? Er sá aðili með starfsleyfi? Og hvort hentar þér betur að passa lyklana eða treysta öðrum fyrir þeim?
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.