Hvítbók (e. whitepaper) er skjal sem lýsir rafmynt eða verkefni: hvaða vanda það á að leysa, hvernig tæknin virkar og hvaða reglur gilda, til dæmis um framboð. Flest verkefni birta hvítbók áður en þau fara í gang.
Frægasta dæmið
Hvítbók BitcoinBitcoinFyrsta og stærsta rafmyntin, stafrænn gjaldmiðill sem enginn einn aðili stjórnar og takmarkast við 21 milljón bitcoin. heitir „Bitcoin: A Peer-to-Peer Electronic Cash System“. Satoshi NakamotoSatoshi NakamotoDulnefni höfundar Bitcoin, sem birti hvítbók sína árið 2008, kom netinu af stað árið 2009 og hvarf af sjónarsviðinu skömmu síðar. sendi hana á póstlista um dulritun 31. október 2008. Hún er aðeins níu blaðsíður og lýsir öllu kerfinu: færslum, bálkum, proof of workProof of workSamstöðuaðferð þar sem rétturinn til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna fellur í hlut þess sem fyrstur leysir erfiða reikningsþraut. og því hvernig netið kemst að samkomulagi. Hún er enn aðgengileg á bitcoin.org.
Hvítbók EthereumEthereumOpin bálkakeðja sem getur keyrt forrit og snjallsamninga, með eigin rafmynt sem heitir ether (ETH). skrifaði Vitalik Buterin áður en netið fór í gang árið 2015. Þar er lýst hugmyndinni um bálkakeðju sem getur keyrt forrit.
Hvítbækur og MiCA
Samkvæmt MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES., sem gildir á Íslandi, þarf yfirleitt að birta hvítbók áður en ný sýndareign er boðin almenningi á EES-svæðinu. Þar verða að koma fram upplýsingar um útgefandann, verkefnið, réttindi kaupenda, tæknina og áhættuna, og textinn á að vera skýr og ekki villandi. Eftirlitsstjórnvöld, hér á landi Seðlabanki Íslands, samþykkja þó ekki hvítbókina, og það á að koma fram á fyrstu síðu hennar.
Hvað er gott að vita?
Hver sem er getur skrifað hvítbók, og vandað skjal er engin trygging fyrir traustu verkefni. Lestu hana með gagnrýnum augum. Óljós loforð um ávöxtun, lítið um tæknilegar útskýringar og texti afritaður úr öðrum hvítbókum eru varúðarmerki.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.