Rafmyntavetur (e. crypto winter) er heiti á löngum og djúpum bjarnarmarkaðiBjarnarmarkaðurTímabil þar sem verð á markaði lækkar lengi og svartsýni ríkir meðal fjárfesta. í rafmyntum. Verð lækkar mikið og helst lágt í marga mánuði eða ár, viðskipti dragast saman og almenningur missir áhugann. Orðið vísar til vetrar sem virðist aldrei ætla að taka enda.
Dæmi úr sögunni
Rafmyntamarkaðurinn hefur gengið í gegnum nokkra vetur:
- 2014. Rafmyntamiðlunin Mt. Gox, sem þá var sú stærsta í heimi, hrundi í febrúar 2014. Verð bitcoin féll um meira en 80% frá hámarkinu í lok nóvember 2013 fram í janúar 2015.
- 2018. Eftir mikla hækkun árið 2017 féll verð bitcoin um meira en 80% frá desember 2017 til desember 2018. Mörg verkefni sem höfðu safnað fé með sölu tóka hurfu.
- 2022. Verð bitcoin féll úr um 67.500 Bandaríkjadölum í nóvember 2021 í um 15.800 dali í nóvember 2022, rúmlega 75% lækkun. Stöðugleikamyntin TerraUSD hrundi í maí, lánafyrirtækið Celsius stöðvaði úttektir í júní og rafmyntamiðlunin FTX fór í gjaldþrot í nóvember.
Hvað einkennir rafmyntavetur?
- Verð flestra rafmynta lækkar meira en verð bitcoin, og sumar ná sér aldrei.
- Fyrirtæki segja upp fólki og þau veikustu fara í þrot.
- Fréttir verða neikvæðar og FUDFUDÓtti, óvissa og efasemdir (e. fear, uncertainty and doubt): neikvæðar fréttir eða orðrómur sem fá fólk til að selja. breiðist út.
- Svik og veikleikar sem fóru leynt í uppsveiflunni koma í ljós.
Hvað tekur við?
Hingað til hefur markaðurinn náð sér eftir hvern vetur, og BitcoinBitcoinFyrsta og stærsta rafmyntin, stafrænn gjaldmiðill sem enginn einn aðili stjórnar og takmarkast við 21 milljón bitcoin. hefur að lokum farið yfir fyrra hámark. Eftir veturinn 2022 gerðist það í mars 2024. Fortíðin segir þó ekkert um framtíðina, og enginn veit hvenær næsti vetur hefst eða hve lengi hann varir.
Sumir líta á veturinn sem tíma til að læra og byggja, og halda í eignir sínar í gegnum hann, sem kallast HODLHODLSlangur fyrir að halda í rafmyntina sína til langs tíma og selja ekki þótt verðið sveiflist.. Það er auðveldara ef þú hefur ekki lagt meira undir en þú þolir að tapa.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 2. nóvember 2026.