Satoshi Nakamoto

Dulnefni höfundar Bitcoin, sem birti hvítbók sína árið 2008, kom netinu af stað árið 2009 og hvarf af sjónarsviðinu skömmu síðar.

Satoshi Nakamoto er nafnið sem höfundur BitcoinBitcoinFyrsta og stærsta rafmyntin, stafrænn gjaldmiðill sem enginn einn aðili stjórnar og takmarkast við 21 milljón bitcoin. notaði. Enginn veit með vissu hver stendur á bak við nafnið, hvort um einn einstakling eða hóp sé að ræða, eða frá hvaða landi Satoshi kemur.

Hvað gerði Satoshi?

  • 31. október 2008 sendi Satoshi stutta ritgerð, hvítbókHvítbókSkjal þar sem höfundar rafmyntar eða verkefnis lýsa hvernig það virkar, til hvers það er og hvaða reglur gilda um það. Bitcoin, á póstlista um dulritun. Þar var öllu kerfinu lýst á níu blaðsíðum.
  • 3. janúar 2009 varð fyrsti bálkurinnBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan. til. Í bálkinn var skrifuð fyrirsögn úr breska dagblaðinu The Times frá sama degi, um að fjármálaráðherra Bretlands væri á barmi þess að bjarga bönkunum í annað sinn.
  • Árin 2009 og 2010 vann Satoshi að hugbúnaðinum með öðrum forriturum og svaraði spurningum á spjallþráðum.

Hvað varð um Satoshi?

Satoshi hætti að skrifa opinberlega í lok árs 2010, og eftir árið 2011 hefur ekkert heyrst frá Satoshi. Þróunin hélt áfram í höndum annarra forritara. Síðan hafa margir verið nefndir sem Satoshi, eða sagst vera Satoshi, en enginn hefur sannað það.

Af hverju skiptir þetta máli?

Hvarf höfundarins er hluti af því sem gerir Bitcoin dreifstýrtDreifstýringÞegar vald og ábyrgð dreifast á marga þátttakendur í stað þess að einn banki, fyrirtæki eða ríki ráði yfir kerfinu.. Enginn stofnandi getur breytt reglunum, selt kerfið eða lokað því. Bitcoin er opinn hugbúnaðurOpinn hugbúnaðurHugbúnaður þar sem frumkóðinn er öllum opinn, svo hver sem er má skoða hann, nota, breyta honum og dreifa honum. sem hver sem er getur skoðað og þróað áfram.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.