Seljanleiki (e. liquidity) segir til um hve auðvelt er að breyta eign í peninga, fljótt og á sanngjörnu verði. Eign með góðan seljanleika getur þú selt strax án þess að lækka verðið. Það getur tekið tíma að selja eign með lítinn seljanleika, eða þú þarft að slá af verðinu.
Hugsaðu um muninn á krónum og íbúð. Krónurnar getur þú notað strax. Það tekur vikur eða mánuði að selja íbúð, og ef þú þarft að selja í flýti færðu líklega minna fyrir hana.
Seljanleiki á rafmyntamarkaði
Á hverjum markaði eru kauptilboð og sölutilboðTilboðabókListi yfir öll opin kauptilboð og sölutilboð í tiltekna eign, raðað eftir verði. Viðskipti verða þegar tilboð mætast. á mismunandi verði. Á markaði með góðan seljanleika eru mörg tilboð nálægt núverandi verði. Þá er verðbiliðVerðbilMunurinn á kaupverði og söluverði sömu eignar á sama tíma, oft notaður sem gjald í viðskiptum með rafmyntir. lítið og stór viðskipti hreyfa verðið lítið.
Stærstu rafmyntirnar, eins og bitcoin og ether, hafa yfirleitt góðan seljanleika og mikið viðskiptamagnViðskiptamagnHeildarvirði allra viðskipta með tiltekna rafmynt á ákveðnu tímabili, oftast síðasta sólarhring.. Minni rafmyntir og nýir tókar hafa oft lítinn seljanleika.
Af hverju skiptir það máli?
Ef seljanleiki er lítill getur stór sala fært verðið verulega niður. Segjum að þú viljir selja fyrir 5 milljónir króna en aðeins séu kauptilboð fyrir 1 milljón nálægt núverandi verði. Þá selst afgangurinn á æ lægra verði.
Lítill seljanleiki eykur líka sveiflurSveiflurMælikvarði á hve mikið og hve hratt verð eignar hækkar og lækkar. og auðveldar hvölumHvalurAðili sem á svo mikið af tiltekinni rafmynt að kaup hans eða sala geta hreyft verðið. að hafa áhrif á verðið. Seljanleiki getur horfið hratt þegar óróleiki grípur markaðinn og margir vilja selja í einu.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.