Bitcoin er fyrsta rafmyntinRafmyntStafrænn gjaldmiðill sem byggir á dulritun og er skráður í sameiginlega færsluskrá, án þess að banki eða ríki gefi hann út eða stjórni honum. sem varð til og hefur alla tíð verið sú stærsta miðað við markaðsvirði. Hugmyndinni var lýst árið 2008 og fyrsti bálkurinn varð til 3. janúar 2009. Enginn banki, ríki eða fyrirtæki stjórnar Bitcoin. Reglurnar eru bundnar í hugbúnað sem þúsundir tölva um allan heim keyra.
Bitcoin eða bitcoin?
Orðið er notað á tvo vegu. Með stórum staf er átt við kerfið sjálft, Bitcoin-netið. Með litlum staf er átt við gjaldmiðilinn, eininguna sem þú kaupir, átt og sendir. Eitt bitcoin skiptist í 100 milljónir Satoshi (sats)Satoshi (sats)Minnsta eining bitcoin: eitt satoshi er hundraðmilljónasti hluti úr einu bitcoin, eða 0,00000001 bitcoin., svo þú getur átt lítið brot úr einu bitcoin.
Helstu einkenni
- Takmarkað framboð. Aldrei verða til fleiri en 21 milljón bitcoin. Þetta hámarksframboðHámarksframboðMesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til af tiltekinni rafmynt samkvæmt reglum hennar, til dæmis 21 milljón bitcoin. er bundið í reglur kerfisins.
- Opin færsluskrá. Allar færslur eru skráðar í bálkakeðjuBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. sem hver sem er getur skoðað.
- Proof of work. Ný bitcoin verða til við námuvinnsluNámuvinnslaFerlið þar sem tölvur keppast við að leysa reikningsþraut til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna og fá ný bitcoin og færslugjöld að launum., þar sem tölvur keppast um að bæta næsta bálki við keðjuna.
- Enginn milliliður. Þú getur sent bitcoin hvert sem er í heiminum, á hvaða tíma sólarhrings sem er.
Hvað þarf að hafa í huga?
Verð á bitcoin sveiflast mikið og hefur oft fallið um meira en helming á nokkrum mánuðum. Færslur verða ekki afturkallaðar og sá sem hefur einkalykilinn ræður yfir bitcoin-inu. Bitcoin er ekki lögeyrir og enginn ábyrgist verðgildi þess.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.