CASP (e. crypto-asset service provider), eða þjónustuveitandi sýndareigna, er fyrirtæki sem hefur starfsleyfi samkvæmt MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES. til að veita þjónustu með sýndareignirSýndareignLagahugtak yfir rafmyntir og tóka: stafræn framsetning á virði eða réttindum sem má millifæra og varðveita með bálkakeðjutækni.. Á Íslandi veitir Seðlabanki Íslands slík starfsleyfi á grundvelli laga nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir.
Hvaða þjónusta krefst starfsleyfis?
MiCA telur upp tíu tegundir þjónustu með sýndareignir. Þær sem almenningur kynnist helst eru:
- varsla og umsýsla sýndareigna fyrir hönd viðskiptavina
- rekstur viðskiptavettvangs fyrir sýndareignir
- skipti á sýndareignum fyrir fjármuni, til dæmis krónur eða evrur
- skipti á sýndareignum fyrir aðrar sýndareignir
- millifærsluþjónusta fyrir sýndareignir fyrir hönd viðskiptavina
- ráðgjöf og eignastýring
Hvert starfsleyfi tilgreinir hvaða þjónustu fyrirtækið má veita. Fyrirtæki með starfsleyfi í einu EES-ríki getur einnig boðið þjónustu í öðrum EES-ríkjum.
Af hverju skiptir það máli?
Til að fá starfsleyfi þarf fyrirtæki meðal annars að hafa hæfa stjórnendur, nægilegt eigið fé og örugga vörslu á eignum viðskiptavina. Það lýtur síðan eftirliti og þarf að fylgja reglum um peningaþvættisvarnirPeningaþvættisvarnir (AML)Reglur og aðgerðir sem eiga að hindra að fjármálakerfið, þar með talið rafmyntir, sé notað til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka. og áreiðanleikakönnunÁreiðanleikakönnun (KYC)Lögbundin könnun þar sem fyrirtæki staðfestir hver viðskiptavinurinn er og hvers eðlis viðskiptin eru, meðal annars með persónuskilríkjum..
Áður en lögin tóku gildi 1. janúar 2026 þurftu þjónustuveitendur sýndareigna á Íslandi aðeins að vera skráðir hjá Seðlabanka Íslands vegna peningaþvættisvarna.
Seðlabankinn birtir skrá yfir eftirlitsskylda aðila þar sem þú getur flett upp þjónustuveitendum sýndareigna. Myntkaup fékk starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna frá Seðlabanka Íslands 25. júní 2026. Nánar á síðunni Starfsleyfi og varsla eigna.
Starfsleyfi verndar þig ekki gegn verðsveiflum, en það þýðir að eftirlitsaðili fylgist með starfseminni.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.