Cardano (ADA)

Á enskuCardano

Bálkakeðja sem notar proof of stake og byggir á ritrýndum rannsóknum. Rafmynt hennar heitir ADA og aldrei verða til fleiri en 45 milljarðar ADA.

Cardano er bálkakeðja sem notar proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins. og byggir á ritrýndum fræðirannsóknum. Rafmynt hennar heitir ADA. Charles Hoskinson, einn af stofnendum Ethereum, og Jeremy Wood hófu verkefnið árið 2015 og netið fór í gang í september 2017.

Hvernig virkar Cardano?

Cardano notar samstöðuaðferðina Ouroboros. Tímanum er skipt í fimm daga tímabil (e. epochs), og í hverri sekúndu er dregið um hvaða staking-hópur (e. stake pool) má búa til næsta bálk. Líkurnar fara eftir því hve mikið ADA er tengt hópnum. Að meðaltali bætist nýr bálkur við á um 20 sekúndna fresti.

Eigendur ADA geta tekið þátt í StakingStakingAð leggja rafmynt að veði á neti sem notar proof of stake, til að taka þátt í að staðfesta færslur gegn umbun í sömu rafmynt. með því að tengja ADA-ið sitt við staking-hóp. ADA-ið fer aldrei úr veskinu, það er ekki læst og það getur ekki tapast vegna refsinga.

Cardano byggir á útvíkkaðri útgáfu af UTXOUTXOÓeytt upphæð úr fyrri færslu; Bitcoin heldur utan um eign fólks sem safn slíkra upphæða, líkt og seðla í veski, en ekki sem eina innstæðu.-líkani Bitcoin. Frá september 2021 hefur verið hægt að keyra snjallsamninga á netinu.

Framboð og stjórnun

HámarksframboðHámarksframboðMesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til af tiltekinni rafmynt samkvæmt reglum hennar, til dæmis 21 milljón bitcoin. ADA er 45 milljarðar og það er bundið í stjórnarskrá Cardano. Um 31,1 milljarðar ADA voru til þegar netið fór í gang og afgangurinn losnar smám saman úr varasjóði, sem umbun og í sameiginlegan sjóð netsins.

Frá janúar 2025 kjósa fulltrúar eigenda ADA, rekstraraðilar staking-hópa og stjórnarskrárnefnd um breytingar á reglum netsins og útgjöld úr sameiginlegum sjóði þess.

Hvað er gott að vita?

  • Cardano fer sér hægt. Snjallsamningar komu fjórum árum eftir að netið fór í gang, og gagnrýnendur segja að það hafi kostað Cardano forskot.
  • ADA ber nafn breska stærðfræðingsins Ödu Lovelace. Minnsta einingin, lovelace, er milljónasti hluti úr ADA.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.