Ryk og rykárás

Á enskudust and dusting attack

Ryk eru örsmáar upphæðir sem kostar meira að senda en þær eru virði. Í rykárás er slíkum upphæðum dreift á veskisföng til að rekja eigendur þeirra.

Ryk (e. dust) eru örsmáar upphæðir rafmyntar, svo litlar að það kostar meira í færslugjaldFærslugjaldGjald sem greitt er rafmyntaneti fyrir að taka færslu með í bálk, en ekki banka eða fyrirtæki. að senda þær en þær eru virði. Í rykárás (e. dusting attack) sendir einhver slíkar upphæðir á fjölda veskisfanga til að sjá hvað verður um þær.

Hvernig verður ryk til?

Á Bitcoin-netinu er inneign veskis geymd sem margar aðskildar upphæðir, svokölluð UTXOUTXOÓeydd upphæð úr fyrri færslu; Bitcoin heldur utan um eign fólks sem safn slíkra upphæða, líkt og seðla í veski, en ekki sem eina innstæðu.. Þegar þú sendir greiðir þú gjald fyrir hverja upphæð sem er notuð, og ef upphæðin er minni en gjaldið borgar sig ekki að nota hana. Hún situr eftir sem ryk.

Bitcoin Core, útbreiddasti hugbúnaður netsins, miðlar sjálfgefið ekki færslum sem búa til svo smáar upphæðir. Mörkin fara eftir tegund veskisfangs og eru nokkur hundruð satoshi, til dæmis 546 satoshi fyrir eldri gerð fanga.

Hvernig virkar rykárás?

Rykárás byggir á því að bálkakeðjurBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. eru opinberar. Ef þú notar rykið seinna í færslu, ásamt öðrum upphæðum í veskinu, sést á bálkakeðjunni að sami aðili á öll fangin. Þannig má tengja saman föng, og ef eitt þeirra tengist reikningi hjá rafmyntamiðlun má komast að því hver á þau. Það má svo nota til að beina svikum eða hótunum að þeim sem eiga mikið.

Á netum eins og Ethereum og Solana er annað afbrigði algengara: verðlausir tókar með nafni sem vísar á vefsíðu, til dæmis „Sæktu verðlaunin þín á ...“. Á síðunni bíður oft veskjatæmirVeskjatæmirSvikaforrit á falskri vefsíðu sem platar þig til að samþykkja færslu eða heimild sem tæmir rafmyntaveskið þitt. sem reynir að fá þig til að samþykkja heimild sem tæmir veskið.

Rykárás og eitrun veskisfangs

Báðar aðferðirnar senda örlitlar upphæðir á veskið þitt, en markmiðið er ólíkt. Í rykárás er markmiðið að rekja þig. Í eitrun veskisfangsEitrun veskisfangsSvik þar sem svikari kemur veskisfangi sem líkist fangi sem þú notar inn í færslusöguna þína, í von um að þú afritir það og sendir honum rafmynt. er markmiðið að fá þig til að afrita falskt veskisfang úr færslusögunni og senda rafmynt á það.

Hvernig verst þú?

  • Láttu óvæntar smáupphæðir eiga sig. Ekki senda þær áfram og ekki reyna að selja óþekkta tóka.
  • Farðu aldrei inn á vefslóðir sem birtast í nöfnum tóka eða færslna.
  • Notaðu aðgerðir veskisins. Sum leyfa þér að frysta einstakar upphæðir (e. coin control), og mörg fela óþekkta tóka sjálfkrafa.
  • Taktu við greiðslum á nýtt veskisfang í hvert sinn, eins og flest Bitcoin-veski gera sjálfkrafa. Það gerir erfiðara að tengja færslurnar saman.

Ryk getur ekki tekið neitt úr veskinu þínu. Hættan felst í því sem þú gerir við það.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 2. nóvember 2026.