Rug pull

Svik þar sem aðstandendur nýs tóka eða rafmyntaverkefnis safna fé frá kaupendum og hverfa síðan með það, svo tókinn verður verðlaus.

Rug pull (bókstaflega að kippa teppinu undan einhverjum) er svik þar sem aðstandendur nýs rafmyntaverkefnis safna fé frá kaupendum og hverfa síðan með það. Eftir sitja kaupendurnir með tókaTókiStafræn eign sem er búin til með snjallsamningi á bálkakeðju annarrar rafmyntar, í stað þess að hafa eigin bálkakeðju. sem enginn vill kaupa. Rug pull er algengast með nýjum memecoinsMemecoinRafmynt sem er sprottin af netgríni eða jarmi, hefur yfirleitt lítið sem ekkert notagildi og byggir verð sitt nær eingöngu á umtali. og smærri verkefnum.

Hvernig virkar rug pull?

Hver sem er getur búið til nýjan tóka á fáeinum mínútum. Aðstandendurnir setja hann á dreifstýrða kauphöllDreifstýrð kauphöll (DEX)Kauphöll sem keyrir á snjallsamningum, þar sem fólk skiptir rafmyntum beint úr eigin veski án fyrirtækis sem milliliðar. og leggja inn fé svo hægt sé að eiga viðskipti með hann. Síðan hefst markaðssetning á samfélagsmiðlum, oft með loforðum um gríðarlega hækkun.

Þegar nóg fé hefur safnast gera aðstandendurnir eitt af þrennu:

  • Tæma pottinn. Þeir taka út féð sem þeir lögðu inn til að skapa seljanleikaSeljanleikiHve auðvelt er að kaupa eða selja eign fljótt á sanngjörnu verði, án þess að viðskiptin hreyfi verðið mikið., svo enginn getur selt.
  • Selja allt í einu. Þeir eiga stóran hluta tókanna og selja þá í einu lagi, svo verðið hrynur.
  • Loka fyrir sölu. Kóði snjallsamningsins leyfir kaupendum að kaupa en ekki selja.

Rug pull er skylt Pump and dumpPump and dumpSvik þar sem verði lítillar rafmyntar er ýtt upp með áróðri svo skipuleggjendur geti selt dýrt og skilið aðra eftir með tapið., en þar er yfirleitt verið að blása upp verð á mynt sem þegar er til.

Varúðarmerki

  • Nafnlaust teymi og engin skýr lýsing á því hvað verkefnið gerir
  • Fáein veskisföng eiga stóran hluta tókanna
  • Verðið hefur rokið upp á örfáum dögum
  • Mikill þrýstingur á samfélagsmiðlum um að kaupa strax
  • Kóði snjallsamningsins hefur hvorki verið birtur né yfirfarinn

Ef þú hefur tapað fé í rug pull getur þú tilkynnt málið til lögreglu á Ísland.is. Hafðu í huga að erfitt er að endurheimta rafmynt, því aðstandendurnir eru oft nafnlausir og erlendis.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.