Verðskrið

Á enskuslippage

Munurinn á verðinu sem þú áttir von á og verðinu sem viðskiptin fóru í raun fram á.

Verðskrið (e. slippage) er munurinn á verðinu sem þú sást þegar þú staðfestir viðskiptin og verðinu sem þau fóru í raun fram á. Það getur verið þér í hag eða óhag, en oftast er talað um verðskrið þegar þú færð verra verð en þú bjóst við.

Af hverju verður verðskrið?

  • Lítill seljanleiki. Ef seljanleikiSeljanleikiHve auðvelt er að kaupa eða selja eign fljótt á sanngjörnu verði, án þess að viðskiptin hreyfi verðið mikið. er lítill eru fá tilboð nálægt núverandi verði. Þau klárast fljótt og afgangurinn af viðskiptunum fer fram á verra verði.
  • Stór viðskipti. Því stærri sem viðskiptin eru miðað við markaðinn, því lengra ná þau inn í tilboðabókinaTilboðabókListi yfir öll opin kauptilboð og sölutilboð í tiltekna eign, raðað eftir verði. Viðskipti verða þegar tilboð mætast. og því meira hreyfa þau verðið.
  • Sveiflur. Þegar verð hreyfist hratt getur það breyst á þeim sekúndum sem líða frá því að þú staðfestir þar til viðskiptin fara fram.

Verðskrið er ekki það sama og verðbilVerðbilMunurinn á kaupverði og söluverði sömu eignar á sama tíma, oft notaður sem gjald í viðskiptum með rafmyntir.. Verðbilið er munurinn á kaup- og söluverði á sama tíma og liggur fyrir áður en þú átt viðskipti. Verðskrið kemur í ljós þegar viðskiptin fara fram.

Á sumum kauphöllum getur þú sett hámarksverð á kaup í stað þess að kaupa á markaðsverði. Þá færðu aldrei verra verð en það sem þú settir, en óvíst er að viðskiptin gangi í gegn.

Verðskrið á dreifstýrðum kauphöllum

Á dreifstýrðum kauphöllumDreifstýrð kauphöll (DEX)Kauphöll sem keyrir á snjallsamningum, þar sem fólk skiptir rafmyntum beint úr eigin veski án fyrirtækis sem milliliðar. (DEX) getur færslan beðið nokkra stund eftir að komast í bálk. Á meðan geta önnur viðskipti hreyft verðið.

Þess vegna bjóða þær upp á stillingu sem kallast vikmörk fyrir verðskrið (e. slippage tolerance). Hún segir hve miklu verra verð þú sættir þig við, til dæmis 1%. Ef verðið fer út fyrir vikmörkin gengur færslan ekki í gegn. Á Ethereum þarf samt að greiða færslugjaldiðFærslugjaldGjald sem greitt er rafmyntaneti fyrir að taka færslu með í bálk, en ekki banka eða fyrirtæki., jafnvel þótt færslan mistakist.

Há vikmörk auka líkur á að viðskiptin gangi í gegn, en þá getur verðið orðið verra. Þau geta líka boðið heim svokölluðum samlokuárásum (e. sandwich attacks). Þá sér einhver færsluna þína á meðan hún bíður og á viðskipti rétt á undan henni og rétt á eftir, á þinn kostnað.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.