Hvað er Chainlink?

Chainlink útskýrt á mannamáli. Hvað véfréttir eru, hvernig Chainlink færir gögn inn á bálkakeðjur, hvað CCIP gerir og til hvers LINK er notað.

Í stuttu máli

  • Chainlink er net svokallaðra véfrétta sem færa upplýsingar utan bálkakeðja, til dæmis verð á rafmyntum, inn í snjallsamninga.
  • LINK er tóki Chainlink. Með honum er greitt fyrir þjónustuna og þeim umbunað sem reka nóður netsins.
  • Chainlink er ekki eigin bálkakeðja. LINK er ERC-20-tóki á Ethereum og alls er til 1 milljarður LINK.
  • Eftirspurn eftir þjónustu Chainlink ræðst að miklu leyti af DeFi, og verð LINK sveiflast mikið.
Efnisyfirlit
  1. Hverjir standa að Chainlink?
  2. Til hvers er Chainlink notað?
  3. Hvernig virkar Chainlink?
  4. Hver er áhættan?
  5. LINK hjá Myntkaupum
  6. Algengar spurningar
  7. Lokaorð

Chainlink er net svokallaðra véfréttaVéfréttÞjónusta sem færir upplýsingar utan bálkakeðjunnar, til dæmis gengi eða veðurgögn, inn í snjallsamninga. sem færa upplýsingar utan bálkakeðjaBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist., til dæmis verð á rafmyntum, inn í snjallsamningaSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera.. LINK er tóki Chainlink og með honum er greitt fyrir þjónustuna og þeim umbunað sem reka nóður netsins.

Margt af því sem byggt er á bálkakeðjum, ekki síst DeFiDeFi (dreifstýrð fjármál)Fjármálaþjónusta, eins og lán, sparnaður og viðskipti, sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað banka eða annarra milliliða., gengur ekki án áreiðanlegra gagna utan frá. Hér förum við yfir hvernig Chainlink leysir þann vanda, hvaða hlutverki LINK gegnir og hvað er gott að vita.

Sergey Nazarov og Steve Ellis stofnuðu Chainlink í september 2017, þegar hvítbók verkefnisins kom út. Dulritunarfræðingurinn Ari Juels var meðal höfunda hennar. Netið fór í gang á Ethereum 30. maí 2019, og fyrirtækið Chainlink Labs vinnur að þróun þess.

Véfréttir tengja keðjuna við umheiminn

Bálkakeðjur eru hannaðar til að vera lokaðar. Það gerir þær öruggar, en snjallsamningur getur hvorki lesið vefsíðu né sótt gögn úr öðrum kerfum. Hugsaðu þér nákvæman bókara í gluggalausu herbergi: hann reiknar allt rétt en veit ekkert um umheiminn nema einhver færi honum upplýsingar.

Véfrétt færir snjallsamningnum þessar upplýsingar. Hjá Chainlink sjá dreifstýrð véfréttanet (e. decentralized oracle networks, DON) um verkið. Hvert þeirra samanstendur af mörgum óháðum rekstraraðilum nóðaNóðaTölva sem keyrir hugbúnað rafmyntanets, geymir afrit af bálkakeðjunni og athugar hvort nýjar færslur og bálkar standist reglurnar. sem sækja gögn frá mörgum gagnaveitum. Ein röng heimild eða ein óheiðarleg nóða ræður því ekki niðurstöðunni.

Gott dæmi eru verðveitur (e. price feeds). Lánaforrit eins og Aave þarf sífellt að vita hvers virði veðiðVeðEign sem lögð er fram til tryggingar fyrir láni. Í DeFi þarf veðið yfirleitt að vera meira virði en lánið. er, svo það geti gripið til þvingaðrar söluÞvinguð salaÞegar veð er selt sjálfkrafa upp í skuld, eða skuldsettri stöðu lokað, af því að veðið eða tryggingin dugar ekki lengur. ef veðið dugar ekki lengur. Aave fær slík verð frá Chainlink.

CCIP tengir bálkakeðjur saman

CCIP (e. Cross-Chain Interoperability Protocol) er staðall Chainlink fyrir samskipti á milli bálkakeðja. Með honum er hægt að flytja tóka á milli keðja og senda skilaboð sem setja af stað snjallsamninga á annarri keðju. Opnað var fyrir almenna notkun CCIP í apríl 2024.

Hefðbundnar fjármálastofnanir hafa líka prófað CCIP. Árið 2023 gerði Swift, sem rekur alþjóðlegt greiðslunet banka, tilraun ásamt meira en tug fjármálastofnana. Þar tengdi CCIP net Swift við bálkakeðjur, svo hægt væri að flytja táknvæddar eignir á milli þeirra. Þetta tengist táknvæðinguTáknvæðing (RWA)Þegar eign utan bálkakeðjunnar, til dæmis ríkisskuldabréf, gull eða fasteign, er gefin út sem tóki sem hægt er að eiga og senda á bálkakeðju., því að skrá hefðbundnar eignir sem tóka á bálkakeðju.

  • Greiðsla fyrir þjónustu. Þeir sem nota véfréttir Chainlink greiða fyrir þær með LINK, og rekstraraðilar nóða fá greitt í LINK.
  • Staking. Rekstraraðilar nóða og aðrir eigendur LINK geta lagt LINK að veði í StakingStakingAð leggja rafmynt að veði á neti sem notar proof of stake, til að taka þátt í að staðfesta færslur gegn umbun í sömu rafmynt.. Ef ákveðin véfréttanet standast ekki fyrirfram settar kröfur getur hluti veðsins tapast, sem kallast SlashingSlashingRefsing á netum sem nota proof of stake. Staðfestingaraðili sem brýtur reglurnar missir hluta af veðinu sínu og er vikið af netinu..

Ekki eigin bálkakeðja

Chainlink er ekki bálkakeðja og hefur enga eigin samstöðuaðferðSamstöðuaðferðReglurnar sem gera þúsundum tölva kleift að koma sér saman um eina útgáfu af bálkakeðjunni án þess að treysta neinum einum aðila. fyrir færslur. Netið er safn margra véfréttaneta sem þjóna ólíkum bálkakeðjum. LINK sjálft er ERC-20ERC-20Staðall fyrir tóka á Ethereum-netinu sem gerir öllum veskjum og þjónustum kleift að taka við þeim og senda þá á sama hátt.-tóki á Ethereum, nánar tiltekið ERC-677, sem er viðbót við ERC-20.

Þegar þú sendir LINK ertu því að senda færslu á Ethereum-netinu. Ethereum staðfestir hana með proof of stake og gjaldið, GasGasMælieining á Ethereum-netinu fyrir þá reiknivinnu sem færsla eða snjallsamningur krefst, og ræður því hve hátt færslugjaldið verður., er greitt í ether. Hraði og kostnaður fara eftir álaginu á Ethereum hverju sinni.

Framboð

Alls er til 1 milljarður LINK og fleiri verða ekki til. Það er heildarframboðHeildarframboðFjöldi eininga rafmyntar sem eru þegar til, hvort sem þær eru komnar í umferð eða eru enn læstar, að frádregnum þeim sem hefur verið eytt. LINK. Ekki eru öll LINK komin í umferð, og samkvæmt Chainlink losna nú um 7% af heildarframboðinu á ári.

Hver er áhættan?

  • Háð DeFi. Stór hluti af notkun Chainlink kemur frá DeFi. Ef umsvif þar dragast saman getur eftirspurn eftir þjónustunni minnkað, og meiri notkun netsins skilar sér heldur ekki sjálfkrafa í eftirspurn eftir LINK.
  • Véfréttir geta brugðist. Ef véfrétt skilar röngu verði bregðast snjallsamningar við því, til dæmis með þvingaðri sölu lána. Dreifstýrð véfréttanet draga úr hættunni en eyða henni ekki.
  • Nýtt framboð. Ný LINK bætast í umferð á hverju ári.
  • Verðsveiflur. Verð LINK sveiflastSveiflurMælikvarði á hve mikið og hve hratt verð eignar hækkar og lækkar. mikið, eins og verð annarra rafmynta.

Hjá Myntkaupum getur þú keypt, selt og geymt LINK. Þú getur líka lagt LINK inn og tekið það út á bálkakeðju, og þá er það sent á Ethereum-netinu sem ERC-20-tóki.

LINK er líka til á öðrum netkerfum, til dæmis Arbitrum, Base og BNB Chain, og veskisföng á þeim líta eins út og á Ethereum. Gættu þess því að velja Ethereum-netið, því sending á röngu netkerfiNetkerfiBálkakeðjan sem rafmynt eða tóki er skráð á og send um, til dæmis Bitcoin-netið eða Ethereum-netið. getur glatast. Ef þú sendir LINK úr eigin veski þarftu líka að eiga svolítið ether fyrir gasinu. Lestu nánar um þetta í greininni Hvernig sendi ég rafmynt í annað veski?

Verð LINK sérðu á verðsíðu LINK.

Algengar spurningar

Nei. Chainlink er net véfrétta sem þjóna mörgum bálkakeðjum. LINK er tóki á Ethereum og færslur í LINK eru staðfestar af Ethereum-netinu.

Af því að LINK er ERC-20-tóki á Ethereum. Hver sending er færsla á Ethereum-netinu og gjaldið fyrir hana er alltaf greitt í ether, ekki í LINK. Sjá Hvað er Ethereum?

Lokaorð

Chainlink er net véfrétta sem færa gögn utan frá inn í snjallsamninga og tengja bálkakeðjur saman með CCIP. Margir líta á slíka tengingu sem forsendu þess að DeFi og táknvæðing virki, og LINK er greiðslumiðill netsins.

Notkun netsins ræðst þó að miklu leyti af DeFi, og verð LINK sveiflast mikið. Kynntu þér áhættuna áður en þú kaupir.

Viltu byrja?

Í Myntkaup appinu kaupir þú og selur rafmyntir með íslenskum krónum. Myntkaup er með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands.

Sækja appið