Netkerfi

Á enskublockchain network

Bálkakeðjan sem rafmynt eða tóki er skráð á og send um, til dæmis Bitcoin-netið eða Ethereum-netið.

Netkerfi (e. blockchain network) er bálkakeðjan sem rafmynt eða tóki er skráð á og send um. Bitcoin-netið, Ethereum-netið og Solana-netið eru dæmi um ólík netkerfi, hvert með sínar eigin reglur og sín eigin færslugjöld.

Hvernig virkar netkerfi?

Hvert netkerfi heldur úti sinni eigin bálkakeðjuBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. og nóðurNóðaTölva sem keyrir hugbúnað rafmyntanets, geymir afrit af bálkakeðjunni og athugar hvort nýjar færslur og bálkar standist reglurnar. um allan heim geyma afrit af henni. Netkerfin tala ekki saman af sjálfu sér. Færsla á Ethereum-netinu sést ekki á Solana-netinu, rétt eins og millifærsla í heimabankanum þínum birtist ekki sjálfkrafa í erlendum banka.

Sumar rafmyntir eru bara til á einu netkerfi. Bitcoin sjálft er til dæmis aðeins til á Bitcoin-netinu. Margir tókarTókiStafræn eign sem er búin til með snjallsamningi á bálkakeðju annarrar rafmyntar, í stað þess að hafa eigin bálkakeðju. eru hins vegar gefnir út á mörgum netkerfum í einu. Stöðugleikamyntin USDC er til á Ethereum, Solana og fjölda annarra netkerfa.

Af hverju skiptir netkerfið máli?

Þegar þú sendir rafmynt verða sendandi og móttakandi að nota sama netkerfið. Ethereum og mörg skyld netkerfi, til dæmis Base og Arbitrum, nota veskisföngVeskisfangRuna af bókstöfum og tölustöfum sem þú gefur upp til að taka á móti rafmynt, svipað og reikningsnúmer í banka. sem líta nákvæmlega eins út. Ef þú sendir USDC á Base-netinu til þjónustu sem tekur aðeins við USDC á Ethereum-netinu getur greiðslan glatast, og oft er erfitt eða ómögulegt að endurheimta hana.

Þess vegna:

  • Athugaðu alltaf hvaða netkerfi móttakandinn styður áður en þú sendir.
  • Sendu fyrst litla prufufærslu ef þú ert í vafa.
  • Mundu að hvert netkerfi hefur sitt eigið færslugjaldFærslugjaldGjald sem greitt er rafmyntaneti fyrir að taka færslu með í bálk, en ekki banka eða fyrirtæki..

Hjá Myntkaupum getur þú sent allar studdar rafmyntir nema USDC á eigið veski, á upprunaneti myntarinnar. Bitcoin fer þá um Bitcoin-netið og ether um Ethereum-netið.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.