Brú (e. bridge) er þjónusta sem flytur rafmynt eða tókaTókiStafræn eign sem er búin til með snjallsamningi á bálkakeðju annarrar rafmyntar, í stað þess að hafa eigin bálkakeðju. á milli tveggja netkerfaNetkerfiBálkakeðjan sem rafmynt eða tóki er skráð á og send um, til dæmis Bitcoin-netið eða Ethereum-netið., til dæmis frá Ethereum yfir á Solana eða yfir á lag 2. Netkerfin tala ekki saman af sjálfu sér, svo brúin er milliliðurinn.
Hvernig virkar brú?
Algeng aðferð er að læsa og gefa út. Þú sendir rafmynt í snjallsamningSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. brúarinnar á fyrra netinu, þar sem hún er læst. Brúin gefur síðan út jafn mikið af vafinni útgáfu (e. wrapped token) á hinu netinu. Þegar þú ferð til baka er vafða útgáfan brennd og upprunalega eignin losuð.
Þetta minnir á fatahengi: þú skilur úlpuna eftir og færð miða í staðinn. Miðinn er aðeins einhvers virði meðan úlpan hangir enn á sínum stað.
Wrapped Bitcoin (WBTC) er dæmi um vafða útgáfu: tóki á Ethereum sem á að jafngilda bitcoin, en er ekki bitcoin sjálft.
Hver er áhættan?
Brýr eru meðal áhættusömustu hluta rafmyntaheimsins:
- Tölvuinnbrot. Í brúm safnast mikið fé á einn stað, sem laðar að tölvuþrjóta. Samkvæmt ethereum.org hafa nokkur af stærstu innbrotunum í DeFiDeFi (dreifstýrð fjármál)Fjármálaþjónusta, eins og lán, sparnaður og viðskipti, sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað banka eða annarra milliliða. beinst að brúm. Úr Wormhole-brúnni var til dæmis stolið 120.000 wETH, að verðmæti um 325 milljónir Bandaríkjadala.
- Villur í kóða. Ein villa í snjallsamningi getur opnað þjófum leið að öllu fénu.
- Traust á rekstraraðilum. Sumar brýr eru reknar af fámennum hópi, sem gæti stöðvað millifærslur eða misfarið með féð.
- Vafða útgáfan er ekki frumritið. Ef brúin er tæmd getur vafða útgáfan orðið verðlaus.
Ef þú notar brú skaltu kynna þér hana vel og byrja á lítilli upphæð.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.