Hvað er Cardano?

Cardano útskýrt á mannamáli. Hverjir standa að netinu, hvernig Ouroboros og staking virka, hvernig framboð ADA er háttað og hvaða áhætta fylgir.

Í stuttu máli

  • Cardano er bálkakeðja sem notar proof of stake og byggir á ritrýndum rannsóknum. Rafmynt hennar heitir ADA.
  • Charles Hoskinson, einn af stofnendum Ethereum, og Jeremy Wood hófu verkefnið árið 2015. Netið fór í gang í september 2017.
  • Eigendur ADA geta tekið þátt í staking án þess að ADA-ið fari úr veskinu eða sé læst.
  • Aldrei verða til fleiri en 45 milljarðar ADA. Það hámark er bundið í stjórnarskrá Cardano.
Efnisyfirlit
  1. Hver bjó til Cardano?
  2. Til hvers er Cardano notað?
  3. Hvernig virkar Cardano?
  4. Hver er áhættan?
  5. ADA hjá Myntkaupum
  6. Algengar spurningar
  7. Lokaorð

Cardano er bálkakeðjaBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. sem notar proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins. og byggir á ritrýndum fræðirannsóknum. Rafmynt hennar heitir ADA og er notuð til að greiða færslugjöld, í StakingStakingAð leggja rafmynt að veði á neti sem notar proof of stake, til að taka þátt í að staðfesta færslur gegn umbun í sömu rafmynt. og til að kjósa um framtíð netsins.

Cardano er þekkt fyrir að flýta sér hægt og vanda til verka. Hér förum við yfir hverjir standa að netinu, hvernig það virkar og hvað er gott að vita.

Hver bjó til Cardano?

Charles Hoskinson, einn af stofnendum Ethereum, og Jeremy Wood hófu verkefnið árið 2015. Þeir stofnuðu fyrirtækið IOHK, sem nú heitir Input Output, og netið fór í gang í september 2017.

Auk IOHK stóðu sjálfseignarstofnunin Cardano Foundation í Sviss og fyrirtækið EMURGO að verkefninu frá upphafi. Í dag samhæfir félagið Intersect þróunina, og ekkert eitt fyrirtæki stjórnar netinu.

ADA ber nafn breska stærðfræðingsins Ödu Lovelace. Minnsta einingin heitir lovelace og er milljónasti hluti úr ADA.

Til hvers er Cardano notað?

  • Rannsóknadrifin þróun. Grunnreglur Cardano voru fyrst hannaðar sem fræðilegar rannsóknir, ritrýndar af öðrum dulritunarfræðingum og síðan forritaðar. Stuðningsmenn telja að þessi vinnubrögð skili traustari hugbúnaði.
  • Staking án binditíma. Eigendur ADA geta látið staking-hóp (e. stake pool) nýta vægi sitt og fengið umbun í staðinn. ADA-ið fer aldrei úr veskinu og er ekki læst, svo það má selja eða færa hvenær sem er. Cardano notar heldur ekki SlashingSlashingRefsing á netum sem nota proof of stake. Staðfestingaraðili sem brýtur reglurnar missir hluta af veðinu sínu og er vikið af netinu., refsingar þar sem hluti veðsins er tekinn.
  • Kosningar á keðjunni. Frá janúar 2025 eru breytingar á reglum netsins og útgjöld úr sameiginlegum sjóði þess ákveðin með kosningum á keðjunni. Þar kjósa fulltrúar sem eigendur ADA velja, rekstraraðilar staking-hópa og stjórnarskrárnefnd.
  • Snjallsamningar og tókar. Frá september 2021 hefur verið hægt að keyra snjallsamningaSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. á Cardano, og tókar eru innbyggðir í keðjuna án snjallsamninga. Á Cardano eru meðal annars dreifstýrðar kauphallirDreifstýrð kauphöll (DEX)Kauphöll sem keyrir á snjallsamningum, þar sem fólk skiptir rafmyntum beint úr eigin veski án fyrirtækis sem milliliðar. og lánaforrit, það sem kallast DeFiDeFi (dreifstýrð fjármál)Fjármálaþjónusta, eins og lán, sparnaður og viðskipti, sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað banka eða annarra milliliða..

Hvernig virkar Cardano?

Ouroboros

Cardano notar samstöðuaðferðinaSamstöðuaðferðReglurnar sem gera þúsundum tölva kleift að koma sér saman um eina útgáfu af bálkakeðjunni án þess að treysta neinum einum aðila. Ouroboros, sem byggir á proof of stake. Fræðigrein um Ouroboros var kynnt á ráðstefnunni CRYPTO árið 2017. Samkvæmt Cardano var Ouroboros fyrsta samstöðuaðferðin af þessu tagi með stærðfræðilega sannað öryggi.

Tímanum er skipt í tímahólf (e. slots) sem eru ein sekúnda hvert, og 432.000 hólf mynda eitt tímabil (e. epoch) sem stendur í fimm daga. Fyrir hvert hólf er dregið um hvaða staking-hópur má búa til næsta bálkBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan., og líkurnar fara eftir því hve mikið ADA er tengt hópnum. Þetta er eins og happdrætti þar sem hvert ADA er einn miði.

Engin námuvinnsla fer fram, svo orkunotkunin er brot af því sem proof of workProof of workSamstöðuaðferð þar sem rétturinn til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna fellur í hlut þess sem fyrstur leysir erfiða reikningsþraut. krefst.

Hraði og gjöld

Nýr bálkur bætist við á um 20 sekúndna fresti að meðaltali. Færslugjaldið er fast grunngjald að viðbættu gjaldi fyrir hvert bæti færslunnar, og venjuleg færsla kostar brot úr einu ADA.

Cardano byggir á útvíkkaðri útgáfu af UTXOUTXOÓeytt upphæð úr fyrri færslu; Bitcoin heldur utan um eign fólks sem safn slíkra upphæða, líkt og seðla í veski, en ekki sem eina innstæðu.-líkani Bitcoin (e. extended UTXO). Kosturinn er sá að veskið getur séð útkomu færslu og kostnaðinn áður en þú staðfestir hana.

Framboð

Stjórnarskrá Cardano kveður á um að aldrei verði til fleiri en 45 milljarðar ADA. Það er hámarksframboðHámarksframboðMesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til af tiltekinni rafmynt samkvæmt reglum hennar, til dæmis 21 milljón bitcoin. ADA.

Þegar netið fór í gang voru til um 31,1 milljarðar ADA. Þar af höfðu um 25,9 milljarðar verið seldir almenningi á árunum 2015 til 2017, að mestu í Japan. Afgangurinn liggur í varasjóði. Í hverju tímabili eru 0,3% af því sem eftir er í sjóðnum greidd út sem umbun og í sameiginlegan sjóð netsins, svo nýjum ADA fækkar jafnt og þétt.

Hver er áhættan?

  • Hæg þróun. Snjallsamningar komu ekki á Cardano fyrr en í september 2021, fjórum árum eftir að netið fór í gang. Gagnrýnendur segja að varfærnin hafi kostað Cardano forskot. Stuðningsmenn svara að vönduð vinnubrögð skili öruggara kerfi.
  • Samkeppni. Ethereum, Solana og fleiri net keppa um sömu notendur og forritara, og sum þeirra hafa fleiri notendur og forrit en Cardano.
  • Verðsveiflur. Verð ADA sveiflastSveiflurMælikvarði á hve mikið og hve hratt verð eignar hækkar og lækkar. mikið, eins og verð annarra rafmynta.

ADA hjá Myntkaupum

Hjá Myntkaupum getur þú keypt, selt og geymt ADA. Þú getur líka lagt ADA inn og tekið það út á bálkakeðju, á Cardano-netinu, sem er upprunanet ADA.

Veldu alltaf Cardano-netið þegar þú sendir ADA, því sending á röngu netkerfiNetkerfiBálkakeðjan sem rafmynt eða tóki er skráð á og send um, til dæmis Bitcoin-netið eða Ethereum-netið. getur glatast. Lestu nánar um þetta í greininni Hvernig sendi ég rafmynt í annað veski?

Verð ADA sérðu á verðsíðu ADA.

Algengar spurningar

Er ADA-ið læst ef ég tek þátt í staking?

Nei. Þegar þú tekur þátt úr eigin veskiEigin varslaÞegar þú geymir einkalyklana að rafmyntinni þinni í eigin veski, svo enginn annar ræður yfir henni en ábyrgðin á lyklunum er öll þín. fer ADA-ið aldrei úr veskinu og það er ekki læst. Fyrsta umbunin berst að jafnaði eftir 15-20 daga, ef hópurinn býr til bálka, og síðan á fimm daga fresti. Lestu meira í greininni Hvað er staking og hvaða áhætta fylgir því?

Hver er munurinn á Cardano og Ethereum?

Bæði netin keyra snjallsamninga og nota proof of stake, en Ethereum er stærra og þar eru fleiri forrit. Cardano notar UTXO-líkan, kosningar á keðjunni og staking án binditíma eða refsinga. Sjá Hvað er Ethereum?

Lokaorð

Cardano er bálkakeðja sem notar proof of stake og var byggð á ritrýndum rannsóknum frá fyrsta degi. Margir meta vönduð vinnubrögð, staking án binditíma og það að eigendur ADA kjósi um framtíð netsins.

Á móti kemur að þróunin hefur verið hæg og samkeppnin er hörð, og verð ADA sveiflast mikið. Kynntu þér áhættuna áður en þú kaupir.

Viltu byrja?

Í Myntkaup appinu kaupir þú og selur rafmyntir með íslenskum krónum. Myntkaup er með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands.

Sækja appið