Hyperliquid (HYPE)

Á enskuHyperliquid

Bálkakeðja smíðuð fyrir viðskipti, þekktust fyrir kauphöll með ótímabundna framvirka samninga. HYPE er tóki netsins.

Hyperliquid er bálkakeðja sem var smíðuð sérstaklega fyrir viðskipti með rafmyntir. Hún er þekktust fyrir kauphöll þar sem fólk verslar með ótímabundna framvirka samningaÓtímabundinn framvirkur samningurAfleiða án gjalddaga sem fylgir verði rafmyntar. Reglulegar greiðslur halda henni nálægt markaðsverði og hún leyfir skuldsetningu., oft með skuldsetningu. HYPE er tóki netsins.

Hvernig virkar Hyperliquid?

Fyrirtækið Hyperliquid Labs, sem Jeff Yan stofnaði ásamt skólafélaga sínum úr Harvard-háskóla, leiðir þróunina. Viðskipti á aðalnetinu hófust árið 2023 og fyrirtækið segist hafa fjármagnað sig sjálft, án áhættufjárfesta.

Hyperliquid er sitt eigið grunnlagGrunnlag (layer 1)Grunnnetið sjálft, eins og Bitcoin eða Ethereum, sem skráir færslur og gengur endanlega frá þeim á eigin bálkakeðju. (e. layer 1) og skiptist í tvo hluta. Í HyperCore eru tilboðabækurTilboðabókListi yfir öll opin kauptilboð og sölutilboð í tiltekna eign, raðað eftir verði. Viðskipti verða þegar tilboð mætast., og allar pantanir og öll viðskipti eru skráð á keðjunni. HyperEVM, sem fór í loftið í febrúar 2025, keyrir snjallsamninga eins og Ethereum. Notendur geyma féð í eigin veski.

HYPE

HYPE varð til 29. nóvember 2024, þegar notendur fengu 31% af hámarksframboðinu, einum milljarði HYPE, í svokölluðu AirdropAirdropÞegar rafmyntaverkefni sendir ókeypis tóka beint í veski fólks, oftast til að kynna sig, en fölsuð airdrops eru líka algeng svikaleið.. HYPE er notað í StakingStakingAð leggja rafmynt að veði á neti sem notar proof of stake, til að taka þátt í að staðfesta færslur gegn umbun í sömu rafmynt. til að tryggja netið, til að fá afslátt af gjöldum og til að greiða fyrir færslur á HyperEVM. Hluti viðskiptagjaldanna fer sjálfkrafa í að kaupa HYPE, sem er svo brennt.

Hvað er gott að vita?

  • Viðskiptin eru að mestu skuldsett afleiðuviðskiptiAfleiðurSamningar sem draga verðgildi sitt af annarri eign, til dæmis hlutabréfum, gjaldmiðli eða rafmynt., sem eru mjög áhættusöm.
  • Virkir staðfestingaraðilar eru fáir og Hyper Foundation ræður yfir stórum hluta veðsins. Í mars 2025 tóku þeir samninga á JELLY af markaði eftir grunsamleg viðskipti.
  • Hyperliquid hefur hvorki starfsleyfi sem fjárfestingarfyrirtæki né sem þjónustuveitandi sýndareigna innan EES.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.