Pig butchering

Svik þar sem svikari byggir upp vináttu eða ástarsamband á netinu og fær fórnarlambið smám saman til að leggja allt sitt í falska rafmyntafjárfestingu.

Pig butchering er svikaaðferð sem sameinar ástarsvikÁstarsvikSvik þar sem svikahrappur byggir upp ástarsamband á netinu, oft mánuðum saman, til að fá fórnarlambið til að senda peninga eða rafmynt. og fjárfestingasvikFjárfestingasvikSvik þar sem lofað er miklum og öruggum hagnaði af fjárfestingu, oft í rafmynt, en svikahrappar taka einfaldlega peningana sem lagðir eru inn.. Svikarinn byggir upp traust á netinu, oft á vikum eða mánuðum, og fær fórnarlambið svo til að fjárfesta í rafmynt á falskri vefsíðu. Nafnið er þýðing á kínverska hugtakinu shā zhū pán. Það vísar til þess að grís er fitaður áður en honum er slátrað, og svikararnir kalla fórnarlömbin sjálfir grísi.

Hvernig fara svikin fram?

  1. Kynnin. Skilaboð berast á samfélagsmiðli, í stefnumótaforriti eða í SMS, oft eins og þau hafi farið á rangt númer.
  2. Traustið. Svikarinn spjallar daglega, sýnir lífi þínu áhuga og byggir upp vináttu eða ástarsamband. Hann biður ekki um peninga.
  3. Tækifærið. Svikarinn segist hafa grætt vel á rafmynt og býðst til að kenna þér. Þér er vísað á vefsíðu eða app sem lítur út eins og raunveruleg rafmyntamiðlun.
  4. Fitan. Fyrstu innlögnin virðast skila miklum hagnaði, og stundum má taka út litla upphæð. Það byggir upp traust, og fórnarlambið leggur meira inn.
  5. Slátrunin. Þegar taka á allt út er fyrst krafist „skatts“ eða „gjalds“. Svo hverfur svikarinn, og peningarnir með.

Hverjir standa að baki?

Svikin eru oft rekin af skipulögðum glæpahópum í Suðaustur-Asíu. Árið 2023 áætlaði Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna að minnst 120.000 manns í Mjanmar og um 100.000 í Kambódíu væru neydd til að vinna við netsvik. Margir þeirra sem skrifa skilaboðin eru því sjálfir fórnarlömb mansals.

Tjónið er gríðarlegt. Samkvæmt bandarísku alríkislögreglunni (FBI) töpuðu Bandaríkjamenn 7,2 milljörðum dala á fjárfestingasvikum tengdum rafmyntum árið 2025, meira en í nokkrum öðrum flokki netsvika.

Hvernig verst þú?

  • Taktu óvæntum skilaboðum frá ókunnugum með fyrirvara, sérstaklega ef þau virðast hafa borist „óvart“.
  • Fjárfestu aldrei á vettvangi sem einhver sem þú hefur aðeins kynnst á netinu mælir með.
  • Kannaðu hvort þjónustan hafi starfsleyfi. Frá 1. júlí 2026 mega aðeins þjónustuveitendur með starfsleyfi samkvæmt MiCA veita þjónustu með sýndareignir á Íslandi.
  • Ef þú þarft að greiða gjald til að fá þína eigin peninga út eru það svik.

Ef þú hefur lent í svikum skaltu hafa samband við bankann þinn og tilkynna málið til lögreglu. Varastu svo endurheimtarsvikEndurheimtarsvikSvik sem beinast að fólki sem hefur þegar verið svikið. Svikarinn býðst til að endurheimta peningana gegn gjaldi, en gjaldið er bara nýtt tap., sem fylgja oft í kjölfarið.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 2. nóvember 2026.