Hvernig sendi ég rafmynt í annað veski?

Svona sendir þú rafmynt í annað veski: rétt veskisfang, rétt netkerfi, memo eða destination tag, færslugjald og prufufærsla fyrst.

Í stuttu máli

  • Til að senda rafmynt þarftu veskisfang viðtakandans, og þú verður að nota sama netkerfi og viðtakandinn.
  • Sumar rafmyntamiðlanir þurfa líka memo eða destination tag, til dæmis fyrir XRP. Án þess getur sendingin lent á röngum stað.
  • Færslur á bálkakeðju er ekki hægt að afturkalla. Afritaðu veskisfangið, berðu það saman staf fyrir staf og sendu fyrst litla upphæð.
  • Hjá Myntkaupum má senda allar studdar rafmyntir nema USDC í eigið veski, á upprunaneti myntarinnar.
Efnisyfirlit
  1. Það sem þú þarft
  2. Veskisfangið
  3. Rétt netkerfi skiptir öllu
  4. Memo og destination tag
  5. Færslugjald
  6. Staðfestingar
  7. Prófaðu fyrst með lítilli upphæð
  8. Varastu address poisoning
  9. Færslur verða ekki afturkallaðar
  10. Svona virkar þetta hjá Myntkaupum
  11. Algengar spurningar
  12. Lokaorð

Til að senda rafmynt í annað veski þarftu veskisfang viðtakandans og þú verður að velja sama netkerfi og viðtakandinn notar. Síðan slærð þú inn upphæðina, greiðir færslugjald og staðfestir. Færslur á bálkakeðju er ekki hægt að afturkalla, svo það borgar sig að fara varlega og prófa fyrst með lítilli upphæð.

Hér förum við yfir það sem þarf að athuga, algengustu mistökin og hvernig úttektir virka hjá Myntkaupum.

Það sem þú þarft

  • Veskisfang viðtakandans. Löng runa af bókstöfum og tölustöfum sem viðtakandinn gefur þér.
  • Rétt netkerfi. Sama netkerfi og viðtakandinn ætlar að taka við sendingunni á.
  • Memo eða destination tag, ef viðtakandinn biður um það.
  • Inneign fyrir færslugjaldi. Hver færsla kostar gjald sem rennur til netsins.

Veskisfangið

VeskisfangVeskisfangRuna af bókstöfum og tölustöfum sem þú gefur upp til að taka á móti rafmynt, svipað og reikningsnúmer í banka. er eins og reikningsnúmer í banka. Bitcoin-veskisföng byrja á 1, 3 eða bc1. Ethereum-veskisföng byrja á 0x og eru 42 stafir.

Í heimabankanum slærð þú inn kennitölu viðtakandans og bankinn athugar hvort hún passi við reikninginn. Á bálkakeðju er ekkert slíkt eftirlit. Ef veskisfangið er gilt en rangt fer rafmyntin þangað og þú færð hana ekki til baka. Mörg veski taka eftir innsláttarvillum, en ekkert veski veit hvort gilt veskisfang tilheyrir réttum aðila.

Svona gerir þú þetta rétt:

  • Afritaðu veskisfangið eða skannaðu QR-kóða. Sláðu það aldrei inn handvirkt.
  • Berðu allt veskisfangið saman við upprunann eftir að þú hefur límt það inn, ekki bara fyrstu og síðustu stafina.
  • Mundu að sum spilliforrit skipta veskisfangi sem þú afritar út fyrir veskisfang svikara. Þess vegna skiptir samanburðurinn máli.

Rétt netkerfi skiptir öllu

Sama rafmynt getur verið til á fleiri en einu netkerfiNetkerfiBálkakeðjan sem rafmynt eða tóki er skráð á og send um, til dæmis Bitcoin-netið eða Ethereum-netið.. StöðugleikamyntirStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. eins og USDC eru til dæmis gefnar út á Ethereum, Solana og mörgum öðrum netkerfum. Sendandi og viðtakandi verða að nota sama netið.

ERC-20ERC-20Staðall fyrir tóka á Ethereum-netinu sem gerir öllum veskjum og þjónustum kleift að taka við þeim og senda þá á sama hátt. er gott dæmi. Það er staðall fyrir tókaTókiStafræn eign sem er búin til með snjallsamningi á bálkakeðju annarrar rafmyntar, í stað þess að hafa eigin bálkakeðju. á Ethereum-netinu og var kynntur árið 2015. Shiba Inu (SHIB) og Chainlink (LINK) eru til dæmis ERC-20-tókar. Gallinn er að veskisföng á Ethereum líta eins út og á mörgum öðrum netkerfum, til dæmis Arbitrum, BNB Smart Chain og Polygon. Veskisfangið getur því virst rétt þótt viðtakandinn noti annað net.

Ef þú sendir á rangt net getur sendingin glatast. Stundum er hægt að bjarga henni, til dæmis ef viðtökuveskið er þitt eigið og styður hitt netkerfið, en oft ekki. Rafmyntamiðlun sem fær sendingu á röngu neti getur hugsanlega bjargað henni, en henni ber engin skylda til þess.

Reglan er einföld: athugaðu alltaf á hvaða neti viðtakandinn vill fá sendinguna og veldu nákvæmlega það net. Til að flytja rafmynt á milli netkerfa þarf sérstaka þjónustu sem kallast brúBrúÞjónusta sem flytur rafmynt eða tóka á milli tveggja netkerfa, oftast með því að læsa eignina á öðru netinu og gefa út jafngildi á hinu.. Venjuleg sending dugar ekki.

Memo og destination tag

Sumar rafmyntamiðlanir nota eitt sameiginlegt veskisfang fyrir alla viðskiptavini sína. Til að vita hver á sendinguna þurfa þær aukanúmer sem fylgir færslunni, eins konar tilvísun.

Á XRP Ledger kallast þetta destination tag. Það er tala sem segir rafmyntamiðlun hvaða viðskiptavinur á að fá sendinguna. Ef talan gleymist berst XRP-ið á veskisfang miðlunarinnar en ekki inn á þinn reikning, og þá þarf að leita til þjónustuvers hennar. Sum veskisföng hafna líka sendingum án destination tag. Önnur netkerfi hafa sambærilegan reit, oft kallaðan memo.

Þegar þú sendir XRP eða aðra slíka rafmynt á rafmyntamiðlun skaltu því athuga hvort destination tag eða memo sé gefið upp með veskisfanginu. Ef svo er þarf að fylla það út. Þegar þú sendir í eigið veski þarf yfirleitt ekkert slíkt.

Færslugjald

Hver færsla kostar færslugjaldFærslugjaldGjald sem greitt er rafmyntaneti fyrir að taka færslu með í bálk, en ekki banka eða fyrirtæki. sem rennur til þeirra sem reka netið, ekki til þjónustunnar sem þú sendir frá. Gjaldið fer eftir netkerfinu og álaginu á því. Á Bitcoin-netinu ræðst það af stærð færslunnar í bætum, ekki af upphæðinni.

Á Ethereum-netinu kallast gjaldið GasGasMælieining á Ethereum-netinu fyrir þá reiknivinnu sem færsla eða snjallsamningur krefst, og ræður því hve hátt færslugjaldið verður. og er greitt í ether. Ef þú sendir ERC-20-tóka úr eigin veski þarftu því líka að eiga svolítið ether fyrir gjaldinu.

Ef gjaldið er of lágt getur færslan beðið lengi eftir því að komast í bálkBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan.. Rafmyntamiðlanir ákveða yfirleitt sjálfar gjaldið fyrir úttektir.

Staðfestingar

Eftir að þú sendir fer færslan út á netið og bíður þess að komast í bálk. Þegar hún er komin í bálk fær hún eina staðfestinguStaðfestingMælikvarði á hve örugglega færsla er skráð: hún fær eina staðfestingu þegar hún fer í bálk og eina til viðbótar með hverjum nýjum bálki. fyrir hvern bálk sem bætist ofan á. Því fleiri staðfestingar, því öruggari er færslan.

Hraðinn er mismunandi eftir netkerfum. Á Bitcoin-netinu bætist bálkur við á um tíu mínútna fresti að jafnaði, og Bitcoin.org mælir með sex staðfestingum fyrir háar fjárhæðir. Hver rafmyntamiðlun ákveður hve margra staðfestinga hún bíður áður en hún færir inneignina.

Þú getur fylgst með færslunni í bálkakönnuðiBálkakönnuðurVefsíða þar sem hver sem er getur flett upp færslum, veskisföngum og bálkum á bálkakeðju. með því að fletta upp færsluauðkenninuFærsluauðkenni (TXID)Einstakt auðkenni hverrar færslu, löng runa af bókstöfum og tölustöfum sem hver sem er getur flett upp í bálkakönnuði. (e. transaction ID).

Prófaðu fyrst með lítilli upphæð

Þegar þú sendir á nýtt veskisfang í fyrsta sinn er gott að senda fyrst litla upphæð. Bíddu þar til hún hefur borist og sendu svo afganginn. Það kostar eitt færslugjald í viðbót, en það er ódýr trygging gegn dýrum mistökum.

Varastu address poisoning

Address poisoning er svikaaðferð sem beinist að fólki sem afritar veskisföng úr færslusögunni sinni. Svikari býr til veskisfang sem byrjar og endar á sömu stöfum og veskisfang sem þú hefur notað. Síðan sendir hann þér örlitla upphæð, eða verðlausa tóka, svo að falska veskisfangið birtist í færslusögunni. Ef þú afritar það þaðan næst þegar þú sendir fer rafmyntin beint til svikarans.

Rannsókn sem kynnt var á USENIX Security-ráðstefnunni árið 2025 taldi um 270 milljónir slíkra tilrauna á Ethereum og BNB Smart Chain á tveimur árum. Tjónið nam að minnsta kosti 83,8 milljónum Bandaríkjadala.

Vörnin er einföld: afritaðu aldrei veskisfang úr færslusögunni. Fáðu það beint frá viðtakandanum, eða úr vistaðri skrá yfir veskisföng sem þú hefur sannreynt, og berðu það saman staf fyrir staf. Lestu líka um algeng rafmyntasvik.

Færslur verða ekki afturkallaðar

Á bálkakeðju er enginn hnappur til að hætta við. Þegar færsla er staðfest getur aðeins viðtakandinn sent rafmyntina til baka. Hvorki forritarar, námuvinnsluaðilar né þjónustan sem þú sendir frá geta snúið henni við.

Þetta er líka ástæðan fyrir því að svikarar vilja fá greitt í rafmynt. Ef einhver þrýstir á þig að senda rafmynt strax, hvort sem það er „fjárfestingarráðgjafi“, „bankastarfsmaður“ eða nýr vinur á netinu, skaltu staldra við.

Svona virkar þetta hjá Myntkaupum

Hjá Myntkaupum getur þú sent allar studdar rafmyntir nema USDC í eigið veski. Hver rafmynt er send á sínu upprunaneti:

RafmyntNetkerfi
Bitcoin (BTC)Bitcoin
Ethereum (ETH)Ethereum
Solana (SOL)Solana
Avalanche (AVAX)Avalanche
Cardano (ADA)Cardano
XRP (XRP)XRP Ledger
Polkadot (DOT)Polkadot
Sui (SUI)Sui
Shiba Inu (SHIB)Ethereum (ERC-20)
Dogecoin (DOGE)Dogecoin
Chainlink (LINK)Ethereum (ERC-20)
Hedera (HBAR)Hedera

Sömu netkerfi eru notuð þegar þú leggur rafmynt inn á Myntkaup, og það er ókeypis. Fyrir úttekt í eigið veski greiðir þú færslugjald, sem er mismunandi eftir rafmyntum.

USDCUSDCStöðugleikamynt frá bandaríska fyrirtækinu Circle sem fylgir Bandaríkjadal, þannig að eitt USDC á alltaf að vera um eins dollara virði. er grunngjaldmiðill reikningsins og ekki er hægt að leggja það inn eða taka það út á bálkakeðju. Ef þú vilt fá USDC-inneignina út tekur þú hana út sem krónur á íslenskan bankareikning.

Hver úttekt er staðfest með PIN-númeri í appinu og í tölvupósti. Óvenju stórar úttektir geta kallað á handvirka öryggisathugun áður en rafmyntin er send. Leiðbeiningar skref fyrir skref eru á hjálparsíðu Myntkaupa. Ef þú átt ekki enn eigið veski skaltu byrja á greininni Hvað er rafmyntaveski?

Algengar spurningar

Hvað tekur sendingin langan tíma?

Það fer eftir netkerfinu, færslugjaldinu og því hve margra staðfestinga viðtakandinn bíður. Á sumum netkerfum tekur það örfáar sekúndur, en á Bitcoin-netinu oft frá tíu mínútum upp í klukkutíma.

Hvað geri ég ef sendingin skilar sér ekki?

Flettu færslunni upp í bálkakönnuði. Ef hún er staðfest þar er rafmyntin komin á veskisfangið sem þú sendir á. Hafðu þá samband við viðtakandann og athugaðu hvort netkerfið og memo eða destination tag hafi verið rétt.

Hvað ef ég sendi á rangt netkerfi?

Það fer eftir því hver stjórnar veskisfanginu á hinu netinu. Ef það er þitt eigið veski getur þú oft náð rafmyntinni með því að tengja veskið við rétta netið. Ef það er rafmyntamiðlun skaltu hafa samband við þjónustuverið strax, en ekki er víst að hún geti hjálpað.

Lokaorð

Að senda rafmynt er einfalt þegar þú veist hvað þarf að athuga: rétt veskisfang, rétt netkerfi, memo eða destination tag ef beðið er um það, og nægilegt færslugjald.

Afritaðu veskisfangið frá traustum aðila, berðu það saman staf fyrir staf og sendu fyrst litla upphæð. Færslan verður ekki afturkölluð, svo það borgar sig að gefa sér eina mínútu aukalega.

Viltu byrja?

Í Myntkaup appinu kaupir þú og selur rafmyntir með íslenskum krónum. Myntkaup er með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands.

Sækja appið