Grunnlag (e. layer 1) er grunnnetið sjálft: bálkakeðjan sem skráir færslur og gengur endanlega frá þeim. Bitcoin, Ethereum, SolanaSolana (SOL)Bálkakeðja sem er hönnuð fyrir hraðar og ódýrar færslur. SOL er rafmynt netsins og er notuð í færslugjöld og staking. og CardanoCardano (ADA)Bálkakeðja sem notar proof of stake og byggir á ritrýndum rannsóknum. Rafmynt hennar heitir ADA og aldrei verða til fleiri en 45 milljarðar ADA. eru öll grunnlög.
Hvernig virkar grunnlag?
Hvert grunnlag hefur sínar eigin reglur, sína eigin rafmynt og sitt eigið öryggiskerfi. Bitcoin-netið er tryggt með proof of workProof of workSamstöðuaðferð þar sem rétturinn til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna fellur í hlut þess sem fyrstur leysir erfiða reikningsþraut. og Ethereum-netið með proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins.. Enginn annar þarf að ábyrgjast það sem þar er skráð.
Líkja má grunnlaginu við þinglýsingabók. Þar er endanlega skráð hver á hvað, og sú skráning gildir.
Af hverju er talað um lag 1 og lag 2?
Grunnlag getur aðeins afgreitt takmarkaðan fjölda færslna í einu, því fjöldi nóða um allan heim þarf að yfirfara hverja færslu. Þegar margir vilja nota netið samtímis hækka færslugjöldinFærslugjaldGjald sem greitt er rafmyntaneti fyrir að taka færslu með í bálk, en ekki banka eða fyrirtæki..
Til að leysa þetta hafa verið byggð kerfi ofan á grunnlögin, sem kallast lag 2Lag 2 (layer 2)Kerfi sem byggt er ofan á bálkakeðju eins og Ethereum eða Bitcoin til að gera færslur hraðari og ódýrari en á grunnlaginu sjálfu. (e. layer 2). Þau afgreiða færslur hraðar og með lægri gjöldum, en nota grunnlagið til að ganga endanlega frá þeim. LeifturnetiðLeifturnetiðGreiðslunet ofan á Bitcoin-netinu sem gerir bitcoin-greiðslur nær samstundis og ódýrar, án þess að hver greiðsla fari í bálkakeðjuna. er dæmi um slíkt kerfi ofan á Bitcoin.
Þegar talað er um „layer 1“-mynt er yfirleitt átt við rafmynt grunnlagsins sjálfs, til dæmis bitcoin, ether eða SOL.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.