Hvað er helmingun bitcoin?

Helmingun bitcoin útskýrð. Hvað hún er, af hverju hún er til, sagan frá 2012 til 2024, næsta helmingun 2028 og hvað hún þýðir fyrir verðið.

Í stuttu máli

  • Við helmingun (e. halving) lækkar fjöldi nýrra bitcoin sem námuvinnsluaðilar fá fyrir hvern bálk um helming. Hún verður á 210.000 bálka fresti, eða um það bil fjórða hvert ár.
  • Helmingun er innbyggð í reglur Bitcoin og er ástæða þess að aldrei verða til fleiri en 21 milljón bitcoin.
  • Helmingun hefur orðið fjórum sinnum, síðast 20. apríl 2024, þegar umbunin fór úr 6,25 í 3,125 bitcoin. Næsta helmingun er væntanleg vorið 2028.
  • Verð bitcoin hefur hækkað mikið eftir fyrri helminganir en líka fallið mikið. Fyrri mynstur segja ekkert öruggt um framtíðina.
Efnisyfirlit
  1. Hvernig verða ný bitcoin til?
  2. Hvað gerist við helmingun?
  3. Af hverju er helmingun til?
  4. Saga helmingunarinnar
  5. Hvenær verður næsta helmingun?
  6. Hvað þýðir helmingun fyrir verðið?
  7. Hvað þýðir helmingun fyrir námuvinnsluaðila?
  8. Algengar spurningar
  9. Lokaorð

Helmingun bitcoin (e. halving) er fyrirfram ákveðin breyting sem helmingar umbunina sem námuvinnsluaðilar fá fyrir hvern nýjan bálk. Hún verður á 210.000 bálka fresti, um það bil fjórða hvert ár, og hægir á útgáfu nýrra bitcoin.

Helmingunin er ein af grunnreglum Bitcoin og ástæða þess að aldrei verða til fleiri en 21 milljón bitcoin. Hver helmingun vekur mikla athygli. Hér förum við yfir hvernig hún virkar, söguna hingað til og hvað hún þýðir, og þýðir ekki, fyrir verðið.

Hvernig verða ný bitcoin til?

Ný bitcoin verða til við námuvinnsluNámuvinnslaFerlið þar sem tölvur keppast við að leysa reikningsþraut til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna og fá ný bitcoin og færslugjöld að launum.. Námuvinnsluaðilar keppast við að bæta næsta bálkiBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan. við bálkakeðjunaBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist.. Sá sem vinnur fær ný bitcoin að launum, auk færslugjaldannaFærslugjaldGjald sem greitt er rafmyntaneti fyrir að taka færslu með í bálk, en ekki banka eða fyrirtæki. í bálkinum. Nýju bitcoin-in kallast bálkaumbunBálkaumbunÞað sem námuvinnsluaðili fær fyrir að bæta bálki við keðjuna: ný bitcoin auk færslugjaldanna í bálkinum..

Nýr bálkur finnst að jafnaði á tíu mínútna fresti, sem gerir um 144 bálka á sólarhring. Með umbuninni sem gilt hefur frá apríl 2024, 3,125 bitcoin á bálk, verða því til um 450 ný bitcoin á dag. Lestu meira í greininni Hvað er námuvinnsla?

Hvað gerist við helmingun?

Á 210.000 bálka fresti lækkar bálkaumbunin um helming. Reglan er innbyggð í hugbúnað Bitcoin og helmingunin gerist því sjálfkrafa. Enginn þarf að taka ákvörðun og enginn getur frestað henni.

Helmingunin miðast við fjölda bálka, ekki dagsetningu. Þess vegna er aðeins hægt að áætla fyrirfram hvaða dag hún verður.

Eftir helmingun fá námuvinnsluaðilar helmingi færri ný bitcoin fyrir sömu vinnu. Færslugjöldin breytast hins vegar ekki.

Af hverju er helmingun til?

Satoshi NakamotoSatoshi NakamotoDulnefni höfundar Bitcoin, sem birti hvítbók sína árið 2008, kom netinu af stað árið 2009 og hvarf af sjónarsviðinu skömmu síðar. hannaði Bitcoin með fyrirfram ákveðnu og takmörkuðu framboði. Í hvítbókinniHvítbókSkjal þar sem höfundar rafmyntar eða verkefnis lýsa hvernig það virkar, til hvers það er og hvaða reglur gilda um það. frá 2008 er útgáfu nýrra bitcoin líkt við gullgröft, þar sem nýtt gull bætist smám saman í umferð. Í hugbúnaðinum sjálfum var svo ákveðið að útgáfan skyldi helmingast með reglulegu millibili.

Helmingunin hefur þríþættan tilgang:

  • Takmarkað framboð. Þar sem umbunin helmingast aftur og aftur nálgast heildarfjöldinn 21 milljón en fer aldrei yfir hana. Það er hámarksframboðHámarksframboðMesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til af tiltekinni rafmynt samkvæmt reglum hennar, til dæmis 21 milljón bitcoin. bitcoin.
  • Fyrirsjáanleiki. Allir geta vitað fyrirfram hve mörg bitcoin verða til og hvenær. Enginn getur ákveðið að auka útgáfuna.
  • Hvati í upphafi. Há umbun fyrstu árin hvatti fólk til að taka þátt og tryggja netið á meðan fáir notuðu það.

Hefðbundnir gjaldmiðlar virka öðruvísi. Seðlabankar stýra peningamálum eftir aðstæðum hverju sinni. Seðlabanki Íslands stefnir til dæmis að því að verðbólgaVerðbólgaAlmenn hækkun verðlags yfir tíma, sem þýðir að hver króna kaupir minna en áður. sé að jafnaði um 2,5% á ári. Útgáfa bitcoin er hins vegar föst og minnkar með tímanum.

Saga helmingunarinnar

Fyrsti bálkurinn varð til 3. janúar 2009. Fyrstu tæp fjögur árin fengu námuvinnsluaðilar 50 bitcoin fyrir hvern bálk. Síðan þá hefur umbunin helmingast fjórum sinnum:

HelmingunDagsetningBálkur nr.Umbun á bálk
Fyrsta28. nóvember 2012210.000úr 50 í 25 bitcoin
Önnur9. júlí 2016420.000úr 25 í 12,5 bitcoin
Þriðja11. maí 2020630.000úr 12,5 í 6,25 bitcoin
Fjórða20. apríl 2024840.000úr 6,25 í 3,125 bitcoin
Fimmta (væntanleg)vorið 20281.050.000úr 3,125 í 1,5625 bitcoin

Í mars 2026 fór fjöldi útgefinna bitcoin yfir 20 milljónir. Innan við milljón bitcoin eru því eftir og þau verða til á rúmum hundrað árum. Framboð bitcoin eykst nú um innan við 1% á ári og eftir næstu helmingun verður aukningin helmingi minni.

Hvenær verður næsta helmingun?

Næsta helmingun verður við bálk númer 1.050.000 og þá lækkar umbunin í 1,5625 bitcoin á bálk. Miðað við tíu mínútur á bálk má búast við henni vorið 2028. Nákvæm dagsetning fer eftir því hve hratt bálkar finnast fram að því.

Helmingunin endurtekur sig þar til umbunin verður minni en minnsta eining bitcoin, eitt Satoshi (sats)Satoshi (sats)Minnsta eining bitcoin: eitt satoshi er hundraðmilljónasti hluti úr einu bitcoin, eða 0,00000001 bitcoin.. Það gerist í kringum árið 2140. Eftir það fá námuvinnsluaðilar aðeins færslugjöld.

Hvað þýðir helmingun fyrir verðið?

Þetta er spurningin sem flestir spyrja. Satt best að segja veit það enginn.

Rökin sem oft heyrast eru einföld. Ef færri ný bitcoin koma á markað á hverjum degi og eftirspurnin helst óbreytt ætti verðið að hækka. Þetta byggist þó á forsendu sem enginn getur tryggt: að eftirspurnin haldist eða aukist.

Sagan sýnir bæði miklar hækkanir og mikið verðfall:

  • Í fyrstu þrjú skiptin hækkaði verðið mikið á 12 til 18 mánuðum eftir helmingunina. Í kjölfarið féll það um 75 til 85% frá hámarkinu.
  • Eftir helmingunina 2024 var myndin önnur. Verðið náði nýju hámarki í mars 2024, áður en helmingunin varð. Næsta hámark kom í október 2025, þegar verðið var um tvöfalt hærra en við helmingunina. Fram á mitt ár 2026 féll verðið svo um meira en helming.

Gættu þess að draga ekki of miklar ályktanir af þessu:

  • Úrtakið er lítið. Helmingun hefur aðeins orðið fjórum sinnum og fjögur dæmi sanna enga reglu.
  • Margt annað gerðist á sama tíma. Vextir, efnahagsástand og nýjar reglur hafa líka haft mikil áhrif. Til dæmis voru kauphallarsjóðirKauphallarsjóður (ETF)Sjóður sem gengur kaupum og sölum í kauphöll eins og hlutabréf og getur til dæmis fylgt verði bitcoin. með bitcoin leyfðir í Bandaríkjunum í janúar 2024.
  • Allir vita af helmingun fyrirfram. Tímasetningin er þekkt löngu áður, svo væntingar geta þegar verið komnar inn í verðið.
  • Áhrifin minnka. Ný útgáfa er orðin lítil miðað við öll bitcoin sem þegar eru til. Hver helmingun breytir framboðinu hlutfallslega minna en sú á undan.

Helmingun ein og sér segir ekkert um það hvort rétt sé að kaupa eða selja. Verð bitcoin getur hækkað og lækkað mikið, óháð helmingun. Lestu meira í greininni Af hverju sveiflast verð rafmynta?

Hvað þýðir helmingun fyrir námuvinnsluaðila?

Fyrir námuvinnsluaðila er helmingun stór breyting. Tekjur þeirra af nýjum bitcoin helmingast á einni nóttu, en rafmagnsreikningurinn er óbreyttur. Þeir sem eru með óhagkvæmustu vélarnar eða dýrasta rafmagnið geta þurft að hætta.

Ef margir hætta minnkar reiknigetanReiknigetaFjöldi ágiskana sem allar námuvinnslutölvur rafmyntanets gera á sekúndu, og mælikvarði á hve vel netið er varið gegn árásum. og netið gerir þrautina auðveldari næst þegar erfiðleikastigið er endurreiknað. Kerfið aðlagar sig þannig sjálft.

Til lengri tíma litið þurfa námuvinnsluaðilar að treysta æ meira á færslugjöld. Í október 2026 voru þau innan við 1% af tekjum þeirra af bálkum. Hvort gjöldin dugi til að greiða fyrir öryggi netsins þegar umbunin verður orðin lítil er ein af stóru spurningunum um framtíð Bitcoin.

Algengar spurningar

Hefur helmingun áhrif á bitcoin sem ég á nú þegar?

Nei. Helmingun breytir aðeins því hve mörg ný bitcoin verða til. Bitcoin-ið sem þú átt er óbreytt og færslur virka eins og áður.

Er hægt að breyta eða stöðva helmingunina?

Í orði kveðnu væri hægt að breyta reglunum, en til þess þyrftu notendur og rekstraraðilar nóðaNóðaTölva sem keyrir hugbúnað rafmyntanets, geymir afrit af bálkakeðjunni og athugar hvort nýjar færslur og bálkar standist reglurnar. að taka upp nýjan hugbúnað í stórum stíl. Takmarkað framboð er ein helsta stoð Bitcoin, svo slík breyting þykir afar ólíkleg.

Hækkar verðið alltaf eftir helmingun?

Nei, ekki endilega. Verðið hefur hækkað eftir fyrri helminganir, en það hefur líka fallið mikið í kjölfarið. Mynstur úr fortíðinni tryggja ekkert um framtíðina. Lestu líka Af hverju hefur bitcoin verðgildi?

Er helmingun bara til hjá bitcoin?

Nei. Nokkrar aðrar rafmyntir, til dæmis Litecoin, hafa svipaða reglu. Flestar rafmyntir hafa þó aðra útgáfustefnu. EthereumEthereumOpin bálkakeðja sem getur keyrt forrit og snjallsamninga, með eigin rafmynt sem heitir ether (ETH). hefur til dæmis ekkert fast hámarksframboð.

Lokaorð

Helmingun er innbyggð regla sem lækkar umbun námuvinnsluaðila um helming á um fjögurra ára fresti. Hún gerir framboð bitcoin takmarkað og fyrirsjáanlegt, og síðasta bitcoin-ið verður til í kringum árið 2140.

Helmingun er oft tengd við verðhækkanir, en sagan er stutt og myndin flóknari en svo. Láttu ekki loforð um hækkun eftir helmingun ráða ákvörðunum þínum.

Viltu byrja?

Í Myntkaup appinu kaupir þú og selur rafmyntir með íslenskum krónum. Myntkaup er með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands.

Sækja appið