Í stuttu máli
- Polkadot er net sem tengir saman margar sérhæfðar bálkakeðjur, svokallaðar parachains, sem deila öryggi. DOT er rafmynt netsins.
- Gavin Wood, einn af stofnendum Ethereum, kynnti hugmyndina árið 2016, og netið fór í gang árið 2020.
- Í september 2025 samþykktu DOT-eigendur að setja þak á framboðið við 2,1 milljarð DOT, og útgáfan var skorin niður um rúman helming í mars 2026.
- DOT-eigendur ráða breytingum á netinu í atkvæðagreiðslum, og reglurnar hafa breyst mikið á stuttum tíma.
Efnisyfirlit
Polkadot er net sem tengir saman margar sérhæfðar bálkakeðjurBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist., svokallaðar parachains, sem deila sameiginlegu öryggi og geta skipst á gögnum og eignum. Rafmynt netsins heitir DOT: hún er lögð að veði til að tryggja netið, notuð til að kaupa reiknigetu á því og til að greiða atkvæði um breytingar.
Hugmyndin er að ólíkar keðjur geti sérhæft sig, hver á sínu sviði, en samt unnið saman. Hér förum við yfir hver bjó Polkadot til, hvernig netið virkar, hvað hefur breyst á síðustu árum og hvaða áhætta fylgir.
Hver bjó Polkadot til?
Polkadot er hugarfóstur Gavins Wood, eins af stofnendum Ethereum. Hann kynnti hugmyndina í hvítbókHvítbókSkjal þar sem höfundar rafmyntar eða verkefnis lýsa hvernig það virkar, til hvers það er og hvaða reglur gilda um það. árið 2016 og stofnaði verkefnið ásamt Robert Habermeier og Peter Czaban. Fyrirtækið Parity Technologies smíðaði hugbúnaðinn, og sjálfseignarstofnunin Web3 Foundation styður við rannsóknir og þróun.
Fyrsti bálkur Polkadot varð til 26. maí 2020, og í ágúst sama ár var opnað fyrir millifærslur á DOT. Fyrstu parachains tóku til starfa í desember 2021.
Til hvers er Polkadot notað?
- Eigin keðjur. Verkefni sem þurfa sína eigin keðju geta keypt reiknigetu á Polkadot og fengið öryggi netsins án þess að byggja það upp sjálf. Leikjakeðjan Mythos keyrir til dæmis á Polkadot og þjónar meðal annars leiknum NFL Rivals. Fyrirtækið Mythical Games tilkynnti árið 2023 að það myndi flytja keðjuna af Ethereum yfir á Polkadot.
- Eignir og stöðugleikamyntir. Polkadot Hub heldur utan um DOT, stöðugleikamyntirStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. og aðrar eignir. Circle hóf að gefa USDCUSDCStöðugleikamynt frá bandaríska fyrirtækinu Circle sem fylgir Bandaríkjadal, þannig að eitt USDC á alltaf að vera um eins dollara virði. út beint á Polkadot í september 2023.
- Snjallsamningar. Frá byrjun árs 2026 er hægt að keyra Ethereum-samhæfða snjallsamningaSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. á Polkadot Hub, með sömu verkfærum og forritarar nota á Ethereum.
- Tengingar við önnur net. Sérstök kerfiskeðja, Bridge Hub, tengir Polkadot við önnur net, þar á meðal Ethereum, með svokölluðum brúmBrúÞjónusta sem flytur rafmynt eða tóka á milli tveggja netkerfa, oftast með því að læsa eignina á öðru netinu og gefa út jafngildi á hinu..
Hvernig virkar Polkadot?
Aðalkeðjan og parachains
Kjarninn í Polkadot er aðalkeðjan (e. relay chain). Hún sér um samstöðu og öryggi alls netsins og miðlar skilaboðum á milli keðja. Parachains eru sjálfstæðar keðjur með eigin reglum og oft eigin tókum, en staðfestingaraðilarStaðfestingaraðiliÞátttakandi á neti sem notar proof of stake og leggur eigin rafmynt að veði til að búa til og staðfesta bálka gegn umbun. aðalkeðjunnar yfirfara bálka þeirra. Þannig þarf engin keðja að byggja upp eigið öryggi frá grunni.
Líkja má Polkadot við verslunarmiðstöð eins og Kringluna. Hver verslun ræður vöruúrvali sínu, en öryggisgæsla, rafmagn og bílastæði eru sameiginleg. Keðjurnar tala saman með sameiginlegum staðli sem kallast XCM.
Seint á árinu 2025 voru inneignir, staking og stjórnkerfi netsins flutt af aðalkeðjunni yfir á sérstaka kerfiskeðju, Polkadot Hub. Aðalkeðjan sinnir nú fyrst og fremst samstöðu, öryggi og samskiptum á milli keðja.
Samstaða og staking
Polkadot notar afbrigði af proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins. sem kallast nominated proof of stake. DOT-eigendur, svokallaðir tilnefnendur (e. nominators), velja staðfestingaraðila sem þeir treysta og leggja DOT að veði á bak við þá. Í sameiginlegum sjóðum (e. nomination pools) er hægt að taka þátt með litlu magni, til dæmis 1 DOT.
Reglurnar um stakingStakingAð leggja rafmynt að veði á neti sem notar proof of stake, til að taka þátt í að staðfesta færslur gegn umbun í sömu rafmynt. breyttust mikið árið 2026. Með breytingu sem DOT-eigendur samþykktu og tók gildi í júlí 2026 eiga tilnefnendur ekki lengur á hættu að missa hluta veðsins, svokallað SlashingSlashingRefsing á netum sem nota proof of stake. Staðfestingaraðili sem brýtur reglurnar missir hluta af veðinu sínu og er vikið af netinu.. Biðtíminn eftir að fá DOT laust styttist um leið úr 28 dögum í mest tvo daga. Staðfestingaraðilar geta enn misst hluta af eigin veði ef þeir brjóta reglurnar.
Polkadot 2.0 og agile coretime
Undir heitinu Polkadot 2.0 voru gerðar þrjár breytingar á árunum 2024 og 2025:
- Async backing (maí 2024) helmingaði tímann á milli bálka á parachains, úr 12 sekúndum í 6.
- Agile coretime (september 2024) leysti uppboð af hólmi. Áður þurftu verkefni að vinna uppboð um pláss á netinu og binda mikið DOT í allt að tvö ár. Nú kaupa þau reiknigetu, svokallaðan coretime, með DOT eftir þörfum, ýmist fyrirfram í stærri skömmtum eða jafnóðum.
- Elastic scaling (október 2025) gerir einni keðju kleift að nota fleiri en einn kjarna (e. core) í einu þegar álagið eykst.
Framboð DOT og stjórnkerfi
Fram til ársins 2026 var ekkert hámark á fjölda DOT, og síðustu árin voru gefnar út 120 milljónir nýrra DOT á ári. Í september 2025 samþykktu DOT-eigendur í atkvæðagreiðslu að setja hámarksframboðHámarksframboðMesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til af tiltekinni rafmynt samkvæmt reglum hennar, til dæmis 21 milljón bitcoin. við 2,1 milljarð DOT. Útgáfan var skorin niður um rúman helming 14. mars 2026 og á síðan að minnka á tveggja ára fresti. Samkvæmt Polkadot Wiki er heildarframboðHeildarframboðFjöldi eininga rafmyntar sem eru þegar til, hvort sem þær eru komnar í umferð eða eru enn læstar, að frádregnum þeim sem hefur verið eytt. nú um 1,6 milljarðar DOT.
DOT-eigendur ráða breytingum á netinu í gegnum stjórnkerfi á keðjunni sem kallast OpenGov. Þar er greitt atkvæði um uppfærslur, útgjöld úr sjóði netsins og jafnvel peningastefnuna sjálfa, eins og þakið á DOT sýnir. DOT er því líka stjórnunartókiStjórnunartókiTóki sem veitir atkvæðisrétt um reglur og sjóði DeFi-þjónustu. Hann er ekki hlutabréf og veitir hvorki eignarhlut né rétt til arðs..
Hver er áhættan?
- Flækjustig og samkeppni. Polkadot er tæknilega flókið. Gagnrýnendur benda á að netinu hafi gengið verr að laða til sín notendur og forritara en sumum öðrum netum. Sum verkefni hafa líka yfirgefið netið. Moonbeam, sem var Ethereum-samhæfð parachain, starfar til dæmis nú á öðru neti. Ethereum, lag 2-netLag 2 (layer 2)Kerfi sem byggt er ofan á bálkakeðju eins og Ethereum eða Bitcoin til að gera færslur hraðari og ódýrari en á grunnlaginu sjálfu. og Avalanche bjóða líka upp á sérsniðnar keðjur.
- Hraðar breytingar. Á stuttum tíma hefur útgáfuáætlun, staking-reglum og uppbyggingu netsins verið breytt. Breytingum fylgir hætta á villum, og reglur sem gilda í dag geta breyst í næstu atkvæðagreiðslu.
- Verðsveiflur. Verð DOT sveiflastSveiflurMælikvarði á hve mikið og hve hratt verð eignar hækkar og lækkar. mikið, eins og verð annarra rafmynta.
DOT hjá Myntkaupum
Hjá Myntkaupum getur þú keypt, selt og geymt DOT. Þú getur líka lagt DOT inn og tekið það út á bálkakeðju, á Polkadot-netinu.
Þegar DOT er sent þarf viðtakandinn líka að nota Polkadot-netið. Rafmynt sem er send á rangt netkerfiNetkerfiBálkakeðjan sem rafmynt eða tóki er skráð á og send um, til dæmis Bitcoin-netið eða Ethereum-netið. getur glatast, eins og lýst er í greininni Hvernig sendi ég rafmynt í annað veski? Verð DOT í krónum má sjá á verðsíðu DOT.
Algengar spurningar
Hvað er Kusama?
Kusama er tilraunanet Polkadot með eigin rafmynt, KSM. Þar eru nýjungar oft teknar í notkun á undan Polkadot, við raunverulegar aðstæður.
Er hámark á fjölda DOT?
Já, frá árinu 2026. DOT-eigendur samþykktu þak við 2,1 milljarð DOT, og nýjum DOT fækkar á tveggja ára fresti þar til þakinu er náð.
Lokaorð
Polkadot er net margra sérhæfðra keðja sem deila öryggi og tala saman. DOT er notað til að tryggja netið með staking, kaupa reiknigetu og greiða atkvæði, og frá árinu 2026 er þak á framboðinu.
Netið hefur breyst mikið á síðustu árum, og reglurnar geta haldið áfram að breytast með atkvæðagreiðslum. Verð DOT sveiflast mikið, svo kynntu þér áhættuna áður en þú kaupir.



