Í stuttu máli
- XRP er rafmynt XRP Ledger, opinnar bálkakeðju sem hefur verið í gangi frá árinu 2012 og er hönnuð fyrir hraðar og ódýrar greiðslur.
- Allir 100 milljarðar XRP urðu til í upphafi. Fyrirtækið Ripple fékk 80 milljarða og hefur sett stóran hluta þeirra í tímalás.
- Færslur eru staðfestar á 3-5 sekúndum. Gjaldið er örlítið brot úr einu XRP og því er eytt.
- Máli bandaríska verðbréfaeftirlitsins gegn Ripple lauk í ágúst 2025, og dómur um 125 milljóna dala sekt stendur.
Efnisyfirlit
XRP er rafmynt XRP Ledger, opinnar bálkakeðjuBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. sem er hönnuð til að flytja verðmæti hratt og ódýrt, líka á milli landa. Færsla er staðfest á 3-5 sekúndum og kostar örlítið brot úr einu XRP.
XRP er nátengt bandaríska fyrirtækinu Ripple, sem á mikið af XRP og notar það í greiðsluþjónustu sinni. XRP og Ripple eru þó ekki það sama, eins og fjallað er um hér á eftir.
Hver bjó til XRP?
Forritararnir David Schwartz, Jed McCaleb og Arthur Britto smíðuðu XRP Ledger á árunum 2011 og 2012. Netið fór í gang í júní 2012 og þá urðu til 100 milljarðar XRP. Fleiri verða aldrei til.
Í september 2012 stofnuðu McCaleb og Britto fyrirtæki ásamt Chris Larsen, og það heitir nú Ripple. Höfundar keðjunnar gáfu fyrirtækinu 80 milljarða XRP gegn því að það ynni að þróun XRP Ledger. Hinir 20 milljarðarnir urðu eftir hjá höfundunum.
XRP Ledger er opinn hugbúnaðurOpinn hugbúnaðurHugbúnaður þar sem frumkóðinn er öllum opinn, svo hver sem er má skoða hann, nota, breyta honum og dreifa honum. og netið hefur engan miðlægan stjórnanda. Ripple leggur mikið til þróunarinnar, en hver sem er getur rekið nóðuNóðaTölva sem keyrir hugbúnað rafmyntanets, geymir afrit af bálkakeðjunni og athugar hvort nýjar færslur og bálkar standist reglurnar. og notað netið.
Til hvers er XRP notað?
- Greiðslur á milli landa. Ripple selur fyrirtækjum greiðsluþjónustu sem heitir Ripple Payments. Gjaldmiðli sendandans er skipt í rafmynt eins og XRP, sem fer yfir XRP Ledger á nokkrum sekúndum. Hinum megin er henni skipt í gjaldmiðil viðtakandans. Samkvæmt Ripple nær þjónustan til yfir 60 markaða.
- Stöðugleikamyntin RLUSD. Í desember 2024 hóf Ripple útgáfu RLUSD, stöðugleikamyntarStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. sem fylgir Bandaríkjadal. Hún er gefin út af fjárvörslufélagi með leyfi fjármálaeftirlits New York-ríkis og er meðal annars til á XRP Ledger og Ethereum.
- Tókar og viðskipti. Hver sem er getur gefið út tókaTókiStafræn eign sem er búin til með snjallsamningi á bálkakeðju annarrar rafmyntar, í stað þess að hafa eigin bálkakeðju. á XRP Ledger. Í keðjunni er líka innbyggð dreifstýrð kauphöllDreifstýrð kauphöll (DEX)Kauphöll sem keyrir á snjallsamningum, þar sem fólk skiptir rafmyntum beint úr eigin veski án fyrirtækis sem milliliðar. sem notar bæði tilboðabókTilboðabókListi yfir öll opin kauptilboð og sölutilboð í tiltekna eign, raðað eftir verði. Viðskipti verða þegar tilboð mætast. og sjálfvirkan viðskiptavakaSjálfvirkur viðskiptavaki (AMM)Snjallsamningur sem verðleggur tóka í dreifstýrðri kauphöll með fastri formúlu, út frá því hve mikið er af hvorum tóka í sjóðnum..
Allar færslur á XRP Ledger kosta gjald í XRP, líka þegar sendir eru tókar eins og RLUSD. XRP er því eins konar eldsneyti netsins.
Hvernig virkar XRP Ledger?
Samstaða án námuvinnslu
XRP Ledger notar hvorki proof of workProof of workSamstöðuaðferð þar sem rétturinn til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna fellur í hlut þess sem fyrstur leysir erfiða reikningsþraut. né proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins.. Netið hefur eigin samstöðuaðferðSamstöðuaðferðReglurnar sem gera þúsundum tölva kleift að koma sér saman um eina útgáfu af bálkakeðjunni án þess að treysta neinum einum aðila.: á nokkurra sekúndna fresti bera staðfestingaraðilarStaðfestingaraðiliÞátttakandi á neti sem notar proof of stake og leggur eigin rafmynt að veði til að búa til og staðfesta bálka gegn umbun. saman færslur og koma sér saman um næstu útgáfu færsluskrárinnar. Enginn keppist við að leysa reikningsþrautir og enginn leggur fé að veði.
Hver nóða velur sjálf hvaða staðfestingaraðilum hún treystir. Listinn kallast UNL (e. Unique Node List). Netið gengur eðlilega á meðan færri en 20% traustra staðfestingaraðila bregðast, og til að fá ranga færslu samþykkta þyrftu yfir 80% þeirra að vinna saman.
Hraði og gjöld
Lágmarksgjald fyrir venjulega færslu er 10 drops, eða 0,00001 XRP, því eitt XRP skiptist í milljón drops. Gjaldið rennur ekki til neins heldur er því eytt. Það hækkar þegar álag á netinu eykst, svo það verður dýrt að kaffæra netið í ruslfærslum.
Nýtt veskisfang á XRP Ledger þarf að fá að minnsta kosti 1 XRP til að virkjast. Sú upphæð situr eftir á veskisfanginu sem varasjóður (e. reserve) og ekki er hægt að senda hana.
Framboðið
Reglur netsins leyfa ekki að ný XRP verði til. Þar sem gjöldunum er eytt minnkar heildarframboðiðHeildarframboðFjöldi eininga rafmyntar sem eru þegar til, hvort sem þær eru komnar í umferð eða eru enn læstar, að frádregnum þeim sem hefur verið eytt. örlítið með hverri færslu.
Í desember 2017 setti Ripple 55 milljarða XRP í tímalás (e. escrow) á XRP Ledger. Einn milljarður losnar í byrjun hvers mánaðar og það sem Ripple notar ekki fer aftur í nýjan tímalás. Tilgangurinn var að gera fyrirsjáanlegt hve mikið XRP bætist í umferð.
Hver er áhættan?
Í desember 2020 höfðaði bandaríska verðbréfaeftirlitið (SEC) mál gegn Ripple og tveimur stjórnendum fyrirtækisins. SEC taldi að sala Ripple á XRP hefði verið óskráð verðbréfaútboð.
Í júlí 2023 komst dómari í New York að tvíþættri niðurstöðu. Sala Ripple til stofnanafjárfesta, fyrir um 728 milljónir dala, taldist óskráð verðbréfaútboð. Sjálfvirk sala í rafmyntakauphöllum taldist það ekki, og dómarinn sagði að XRP sem slíkt væri ekki fjárfestingarsamningur. Í ágúst 2024 var Ripple dæmt til að greiða 125 milljóna dala sekt.
Báðir aðilar áfrýjuðu. Árið 2025 reyndu þeir að semja um mildari niðurstöðu, en dómarinn hafnaði því. Í ágúst 2025 drógu SEC og Ripple áfrýjanirnar til baka, svo dómurinn stendur og málinu er lokið.
Annað sem gott er að vita:
- Áhrif Ripple. Ripple á enn mikið af XRP, að mestu í tímalás. Ripple og XRP Ledger Foundation gefa líka út þá lista yfir staðfestingaraðila sem nóður nota sjálfgefið. Í gögnum XRP Ledger kemur raunar fram að útgefendur slíkra lista hafi mikil áhrif.
- Verðsveiflur. Verð XRP sveiflastSveiflurMælikvarði á hve mikið og hve hratt verð eignar hækkar og lækkar. mikið, eins og verð annarra rafmynta.
XRP hjá Myntkaupum
Hjá Myntkaupum getur þú keypt, selt og geymt XRP. Þú getur líka lagt XRP inn og tekið það út á bálkakeðju, á XRP Ledger, sem er upprunanet XRP.
Veldu alltaf XRP Ledger þegar þú sendir XRP. Ef þú velur annað netkerfiNetkerfiBálkakeðjan sem rafmynt eða tóki er skráð á og send um, til dæmis Bitcoin-netið eða Ethereum-netið. getur sendingin glatast. Þegar þú sendir XRP á rafmyntamiðlun þarf auk þess oft að fylla út svokallað destination tag, tölu sem segir miðluninni hver á sendinguna. Lestu nánar um þetta í greininni Hvernig sendi ég rafmynt í annað veski?
Verð XRP sérðu á verðsíðu XRP.
Algengar spurningar
Er XRP það sama og Ripple?
Nei. Ripple er fyrirtæki og XRP er rafmynt XRP Ledger. Netið fór í gang nokkrum mánuðum áður en fyrirtækið var stofnað. Ripple á mikið af XRP og notar það í þjónustu sinni, en hver sem er getur notað XRP Ledger og rekið nóðu.
Verða einhvern tímann til fleiri XRP?
Nei. Allir 100 milljarðar XRP urðu til í upphafi og reglur netsins leyfa ekki að fleiri verði til. Gjöldum er eytt, svo heildarmagnið minnkar hægt og bítandi.
Lokaorð
XRP er rafmynt XRP Ledger, einnar elstu bálkakeðju heims, sem var smíðuð fyrir hraðar og ódýrar greiðslur. Margir meta XRP fyrir hraðann, lágu gjöldin og langa sögu netsins, og Ripple notar það í greiðsluþjónustu sem nær til yfir 60 markaða.
Málinu við SEC er lokið, en verðið sveiflast áfram mikið. Kynntu þér áhættuna áður en þú kaupir.



