Í stuttu máli
- DeFi, dreifstýrð fjármál, er fjármálaþjónusta sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju. Þú notar hana beint úr eigin veski, allan sólarhringinn og án banka.
- Helstu byggingareiningarnar eru dreifstýrðar kauphallir, lánaþjónusta, stöðugleikamyntir, liquid staking, afleiður og brýr.
- Margir sjá kosti í því að DeFi er opið öllum, gagnsætt og að hægt er að raða þjónustunum saman eins og kubbum.
- Áhættan er raunveruleg, til dæmis villur í kóða og árásir á brýr. Fullkomlega dreifstýrð þjónusta fellur utan MiCA og engin innstæðutrygging nær yfir hana.
Efnisyfirlit
DeFi (e. decentralised finance), eða dreifstýrð fjármál, er fjármálaþjónusta sem keyrir á snjallsamningumSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. á bálkakeðju. Þú getur skipt á rafmyntum, lagt inn gegn vöxtum eða tekið lán, allt beint úr þínu eigin rafmyntaveskiRafmyntaveskiForrit eða tæki sem geymir lyklana að rafmyntinni þinni, svo þú getir tekið á móti henni, haldið utan um hana og sent hana.. Þjónustan er opin allan sólarhringinn og enginn banki stendur á milli.
Hér förum við yfir byggingareiningarnar, kostina og áhættuna. Stærstur hluti DeFi varð til á Ethereum, svo gott er að þekkja það net fyrst.
Hvernig virkar DeFi?
Í hefðbundnum fjármálum er alltaf milliliður. Bankinn geymir peningana þína, metur hvort þú fáir lán og ræður opnunartímanum. Í DeFi sér hugbúnaður um þetta allt.
Snjallsamningur er forrit sem keyrir á bálkakeðju og framfylgir reglum sínum sjálfkrafa. Hann virkar svolítið eins og sjálfsali: þú setur inn mynt, velur vöru og vélin afgreiðir þig eftir fyrirfram ákveðnum reglum. Enginn getur breytt niðurstöðunni eftir á og yfirleitt getur hver sem er skoðað kóðann.
Þú þarft hvorki að stofna reikning né sanna hver þú ert. Rafmyntin er í eigin vörsluEigin varslaÞegar þú geymir einkalyklana að rafmyntinni þinni í eigin veski, svo enginn annar ræður yfir henni en ábyrgðin á lyklunum er öll þín., annaðhvort í veskinu þínu eða í snjallsamningi sem ekkert fyrirtæki stýrir.
Helstu byggingareiningarnar
Dreifstýrðar kauphallir
Í dreifstýrðri kauphöllDreifstýrð kauphöll (DEX)Kauphöll sem keyrir á snjallsamningum, þar sem fólk skiptir rafmyntum beint úr eigin veski án fyrirtækis sem milliliðar. (DEX) skiptir þú einum tóka í annan án þess að fyrirtæki taki við fénu. Þekktust er Uniswap, sem fór í loftið á Ethereum 2. nóvember 2018.
Uniswap notar ekki tilboðabókTilboðabókListi yfir öll opin kauptilboð og sölutilboð í tiltekna eign, raðað eftir verði. Viðskipti verða þegar tilboð mætast. eins og hefðbundin kauphöll. Hún er sjálfvirkur viðskiptavakiSjálfvirkur viðskiptavaki (AMM)Snjallsamningur sem verðleggur tóka í dreifstýrðri kauphöll með fastri formúlu, út frá því hve mikið er af hvorum tóka í sjóðnum. (AMM). Fólk leggur tvo tóka saman í sameiginlegan sjóð, svokallaðan liquidity poolLiquidity poolSameiginlegur sjóður tóka í snjallsamningi sem fólk á viðskipti við í dreifstýrðum kauphöllum. Þeir sem leggja í hann fá hlut af þóknunum., og þú átt viðskiptin beint við sjóðinn. Verðið ræðst af hlutfallinu á milli tókanna og breytist við hver viðskipti. Þeir sem leggja fé í sjóðinn fá hluta af viðskiptagjöldunum.
Lán og lántökur
Í lánaþjónustu eins og Aave getur þú lagt inn rafmynt og fengið vexti, eða tekið lán með aðra rafmynt að veðiVeðEign sem lögð er fram til tryggingar fyrir láni. Í DeFi þarf veðið yfirleitt að vera meira virði en lánið.. Enginn metur lánshæfi þitt. Í staðinn þarf veðið alltaf að vera meira virði en lánið, og ef verð þess fellur of mikið er það selt sjálfkrafa. Það kallast þvinguð salaÞvinguð salaÞegar veð er selt sjálfkrafa upp í skuld, eða skuldsettri stöðu lokað, af því að veðið eða tryggingin dugar ekki lengur..
Stöðugleikamyntir
StöðugleikamyntirStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. eins og USDC eru dollarar DeFi. Þær eru notaðar í viðskiptum, sem veð og sem gjaldmiðill lána, því verð þeirra á að haldast nærri einum Bandaríkjadal. Sumar, eins og DAI og arftaki þess USDS, verða sjálfar til í DeFi með rafmynt að veði. Lestu meira um stöðugleikamyntir.
Liquid staking
Ether sem er í staking er bundið á meðan. Með liquid stakingLiquid stakingStaking þar sem þú færð tóka sem kvittun fyrir veðinu. Tókann má selja eða nota á meðan rafmyntin er bundin. færðu í staðinn tóka sem stendur fyrir veðsetta ETH-ið og safnar umbuninni. Þekktasta dæmið er stETH frá Lido. Tókann má svo nota annars staðar í DeFi, til dæmis sem veð fyrir láni. Lestu meira um staking.
Afleiður
Í DeFi er líka verslað með afleiðurAfleiðurSamningar sem draga verðgildi sitt af annarri eign, til dæmis hlutabréfum, gjaldmiðli eða rafmynt., samninga sem fylgja verði annarrar eignar. Algengastir eru ótímabundnir framvirkir samningarÓtímabundinn framvirkur samningurAfleiða án gjalddaga sem fylgir verði rafmyntar. Reglulegar greiðslur halda henni nálægt markaðsverði og hún leyfir skuldsetningu. (e. perpetual futures), oft með mikilli skuldsetninguSkuldsetningAð eiga viðskipti með lánsfé, sem margfaldar bæði hagnað og tap og getur þurrkað út allt framlagið á skömmum tíma.. Hyperliquid er þekkt dæmi um dreifstýrða kauphöll fyrir afleiður. Lestu meira um Hyperliquid.
Brýr
Bálkakeðjur tala ekki saman af sjálfu sér. BrúBrúÞjónusta sem flytur rafmynt eða tóka á milli tveggja netkerfa, oftast með því að læsa eignina á öðru netinu og gefa út jafngildi á hinu. flytur tóka á milli þeirra, oftast með því að læsa tókann á einni keðju og gefa út jafngildi hans á annarri. Í brúm safnast oft gríðarleg verðmæti, og því eru þær vinsælt skotmark tölvuþrjóta.
Hvernig notar fólk DeFi?
Þú tengir rafmyntaveski, til dæmis vafraviðbót eða símaforrit, við vefsíðu þjónustunnar. Vefsíðan er aðeins viðmót. Sjálf viðskiptin fara fram í snjallsamningnum og þú staðfestir hvert skref í veskinu.
Tvennt er gott að skilja:
- Heimildir. Áður en snjallsamningur getur fært tóka úr veskinu þínu þarftu að veita honum heimild (e. approval). Heimildin getur gilt áfram eftir að viðskiptunum lýkur, og oft er hún ótakmörkuð.
- Færslugjöld. Hver aðgerð er færsla á bálkakeðjunni og kostar GasGasMælieining á Ethereum-netinu fyrir þá reiknivinnu sem færsla eða snjallsamningur krefst, og ræður því hve hátt færslugjaldið verður., sem er greitt í rafmynt netsins, til dæmis ether. Gjaldið fer eftir álagi á netinu og er yfirleitt mun lægra á lagi 2 en á Ethereum sjálfu.
Total value locked (TVL)
Algengasti mælikvarðinn á umfang DeFi er total value lockedTotal value locked (TVL)Heildarvirði rafmynta sem notendur hafa lagt inn í snjallsamninga DeFi-þjónustu. Algengur mælikvarði á stærð hennar. (TVL), heildarvirði þeirra eigna sem liggja í snjallsamningum. Samkvæmt DefiLlama nam TVL í DeFi tæpum 89 milljörðum Bandaríkjadala í október 2026. Í nóvember 2021 fór talan yfir 177 milljarða.
TVL er þó grófur mælikvarði. Hann hækkar og lækkar með verði rafmynta, svo hann segir meira um verðlag en um það hve margir nota DeFi.
Stjórnun með DAO og stjórnunartókum
Margar DeFi-þjónustur eru reknar af DAODAOSamtök sem lúta reglum í snjallsamningum, þar sem eigendur tóka greiða atkvæði um ákvarðanir í stað stjórnar eða forstjóra. (e. decentralised autonomous organisation). Það eru samtök sem taka ákvarðanir með atkvæðagreiðslum á bálkakeðju. Atkvæðisrétturinn fylgir stjórnunartókaStjórnunartókiTóki sem veitir atkvæðisrétt um reglur og sjóði DeFi-þjónustu. Hann er ekki hlutabréf og veitir hvorki eignarhlut né rétt til arðs., og því fleiri tóka sem þú átt, því meira vægi hefur atkvæðið.
Handhafar UNI, stjórnunartóka Uniswap frá september 2020, kjósa til dæmis um gjöld og ráðstöfun sjóða. Handhafar AAVE kjósa um vexti og nýjar eignir í Aave. Gagnrýnendur benda á að atkvæðin safnist oft á fáar hendur, svo dreifstýringin sé minni en nafnið gefur til kynna.
Af hverju notar fólk DeFi?
- Opið öllum. Allir með nettengingu og veski geta notað DeFi, óháð búsetu eða efnahag. Enginn þarf að samþykkja þig sem viðskiptavin.
- Gagnsæi. Kóðinn er yfirleitt opinn og allar færslur sjást á bálkakeðjunni. Þú getur séð hve mikið fé er í sjóði og hve mikið af því er í láni.
- Samsetjanleiki. Þjónustur tengjast hver annarri eins og legókubbar. Tóki úr liquid staking getur verið veð í lánaþjónustu, og lánsféð getur farið beint í dreifstýrða kauphöll.
- Alltaf opið. DeFi lokar hvorki um helgar né á frídögum og færslur klárast á sekúndum eða mínútum.
- Engin vörsla hjá fyrirtæki. Þú þarft ekki að treysta fyrirtæki fyrir eignunum, heldur opnum kóða sem allir geta skoðað.
Hver er áhættan?
Kerfi án milliliða þýðir líka að enginn grípur þig ef eitthvað fer úrskeiðis. Helstu áhættuþættirnir eru þessir:
- Villur í kóða og árásir. Ef veikleiki leynist í snjallsamningi eða brú getur tölvuþrjótur tæmt féð sem þar liggur. Í mars 2022 var um 620 milljónum dala stolið úr Ronin-brúnni, sem tengir tölvuleikinn Axie Infinity við Ethereum. Bandaríska alríkislögreglan FBI rakti þjófnaðinn til Lazarus-hópsins í Norður-Kóreu.
- Smitáhrif. Samsetjanleikinn virkar í báðar áttir. Hinn 18. apríl 2026 samþykkti brú fyrir tókann rsETH falsað skeyti og leysti út 116.500 rsETH sem ekkert stóð á bak við. Þrjóturinn lagði tókana að veði í Aave og tók að láni ether að andvirði um 190 milljóna dala. Ekkert var að kóða Aave, en lánveitendur þar urðu samt fyrir áhrifum. Í maí 2026 tókst með samstilltu átaki margra aðila að tryggja að fullar eignir stæðu aftur á bak við rsETH.
- Rug pull. Í rug pullRug pullSvik þar sem aðstandendur nýs tóka eða rafmyntaverkefnis safna fé frá kaupendum og hverfa síðan með það, svo tókinn verður verðlaus. hverfa stofnendur verkefnis með fé notenda.
- Hagræðing véfrétta. Snjallsamningar fá verðupplýsingar frá véfréttumVéfréttÞjónusta sem færir upplýsingar utan bálkakeðjunnar, til dæmis gengi eða veðurgögn, inn í snjallsamninga.. Ef einhverjum tekst að skekkja verðið, til dæmis á litlum markaði, getur hann tekið út meira en hann á rétt á.
- Impermanent loss. Ef þú leggur tvo tóka í liquidity pool og verð annars þeirra tvöfaldast, er hlutur þinn um 5,7% minna virði en ef þú hefðir bara haldið tókunum. Viðskiptagjöldin vega upp á móti, en ekki alltaf að fullu. Þetta kallast impermanent lossImpermanent lossTap sem verður þegar verð tóka í liquidity pool breytist, svo hlutur þinn verður minna virði en ef þú hefðir einfaldlega átt tókana..
- Verðskrið. Á litlum mörkuðum hreyfa stór viðskipti verðið. Munurinn á væntu verði og því verði sem þú færð í raun kallast verðskriðVerðskriðMunurinn á verðinu sem þú áttir von á og verðinu sem viðskiptin fóru í raun fram á..
- Svik með heimildum. Falskar vefsíður fá fólk til að veita ótakmarkaða heimild eða undirrita skilaboð sem tæma veskið. Þetta er afbrigði af vefveiðumVefveiðarSvik þar sem svikahrappar þykjast vera traust fyrirtæki eða stofnun til að fá þig til að gefa upp lykilorð, kortaupplýsingar eða endurheimtarorð..
- Engin vernd. Engin innstæðutrygging nær yfir fé í DeFi og færslur verða ekki afturkallaðar.
DeFi og MiCA
Evrópska reglugerðin MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES. gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026, samkvæmt lögum nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir. Hún nær þó ekki yfir allt DeFi. Í 22. lið aðfararorða reglugerðarinnar segir að þjónusta sem er veitt á fullkomlega dreifstýrðan hátt, án nokkurs milliliðar, eigi ekki að falla undir hana.
Ef einhver aðili veitir þjónustuna eða stýrir henni, beint eða óbeint, gildir MiCA hins vegar áfram, jafnvel þótt hluti hennar fari fram á dreifstýrðan hátt. Í 94. lið kemur fram að MiCA taki ekki til útlána og lántöku sýndareigna. Í 142. grein var framkvæmdastjórn ESB falið að meta hvort setja þurfi reglur um hvort tveggja.
Í fullkomlega dreifstýrðu DeFi er því enginn aðili með starfsleyfi sem ber ábyrgð gagnvart þér, enginn eftirlitsaðili og ekkert kvörtunarferli. Þjónustuveitandi sýndareignaCASP (þjónustuveitandi sýndareigna)Fyrirtæki með starfsleyfi samkvæmt MiCA til að veita þjónustu með sýndareignir, til dæmis kaup, sölu, vörslu eða millifærslur. með starfsleyfi verður hins vegar að veita upplýsingar sem eru sanngjarnar, skýrar og ekki villandi, verja eignarrétt viðskiptavina og taka við kvörtunum. Seðlabanki Íslands eða annar eftirlitsaðili fylgist með honum. Svona sérðu hvort þjónusta hafi starfsleyfi.
Algengar spurningar
Hver er munurinn á DeFi og rafmyntamiðlun?
Hjá rafmyntamiðlunRafmyntamiðlunFyrirtæki eða vettvangur þar sem þú kaupir, selur og skiptir rafmyntum, til dæmis fyrir krónur. geymir fyrirtæki rafmyntina fyrir þig, staðfestir hver þú ert og lýtur eftirliti. Í DeFi geymir þú lyklana þína og átt viðskipti beint við kóða. Lestu um muninn á vörsluþjónustu og eigin veski.
Er ávöxtun í DeFi örugg?
Nei. Vextir í DeFi breytast stöðugt og ráðast af eftirspurn eftir lánum, viðskiptagjöldum og stundum umbun í nýjum tókum. Mjög há ávöxtun er oft merki um mikla áhættu, eins og hrun TerraUSD árið 2022 sýndi.
Lokaorð
DeFi er tilraun til að byggja fjármálakerfi úr opnum kóða í stað stofnana. Kauphallir, lán, stöðugleikamyntir og afleiður eru aðgengileg öllum, allan sólarhringinn, og hver sem er getur sannreynt hvernig kerfið virkar.
Frelsinu fylgir ábyrgð. Enginn eftirlitsaðili, innstæðutrygging eða þjónustuver stendur á bak við fullkomlega dreifstýrða þjónustu. Ef DeFi vekur áhuga þinn er gott að skilja áhættuna vel fyrst.



